Hoppa yfir valmynd

Stýrihópur um vegvísi um vistvænar samgöngur

Innviðaráðuneytið

Vinna stýrihópsins felst í því að taka saman upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum og samgönguinnviðum, greina stöðu orkuskipta í samgöngum og leggja fram vegvísi að vistvænum samgöngum til ársins 2030. Í vegvísinum verða skilgreindar tímasettar aðgerðir þannig að markmiðum ríkisstjórnar Íslands um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum fyrir árið 2030 verði náð.

Áhersla verður lögð á víðtækt samráð við hagaðila við vinnslu vegvísis og hann samþættur við alla málaflokka innviðaráðuneytisins sem og opinberar stefnur, áætlanir og aðgerðir. Skipunartími er 1. mars 2023 - 1. mars 2024.

Stýrihópurinn er svo skipaður:

  • Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, formaður, án tilnefningar,
  • Bergþóra Kristinsdóttir, tilnefnd af Vegagerðinni,
  • Helga Barðadóttir, tilnefnd af umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytinu.
  • Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, tilnefndur af Orkustofnun,
  • Kristín Helga Markúsdóttir, tilnefnd af Samgöngustofu,
  • Stefán Kári Sveinbjörnsson, tilnefndur af Isavia.

 
Tímabundnar nefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum