Helstu verkefni starfshópsins eru:
- Að kortleggja aðgengi fullorðins fatlaðs fólks að námi, þjálfun og stuðningsúrræðum innan skóla og stofnana, hjá fræðsluaðilum og í atvinnulífi.
- Að útbúa yfirlit yfir fjölbreytileika námstilboða og hvort og hvernig auka megi stíganda og samfellu í námi.
- Að taka saman upplýsingar um fjármögnun náms- og stuðningsúrræða fyrir fatlað fólk og meta hvort fá megi betri yfirsýn yfir greiðsluþátttöku eða kostnaðarfyrirkomulag.
- Að koma með tillögur að þróun náms- og stuðningsúrræða fyrir fatlað fólk, meðal annars út frá stafrænum lausnum, nýrri þekkingu eða aðferðum sem auðvelda framkvæmd náms án aðgreiningar.
Hópurinn skal í vinnu sinni hafa til hliðsjónar samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Starfshópinn skipa:
- Sara Dögg Svanhildardóttir, án tilnefningar, formaður.
- Tryggvi Haraldsson, án tilnefningar
- Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands.
- Þóra Kristín Þórsdóttir, tilnefnd af Bandalagi háskólamanna.
- Arna Jakobína Björnsdóttir, tilnefnd af BSRB.
- Einar Mar Þórðarson, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðuneyti.
- Helga Gísladóttir, tilnefnd af Fjölmennt.
- Hildur Bettý Kristjánsdóttir, tilnefnd af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
- Elín Ebba Ásmundsdóttir, tilnefnd af Geðhjálp.
- Guðmundur Ármann Pétursson, tilnefndur af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.
- Jóhanna Sigurjónsdóttir, tilnefnd af innviðaráðuneyti.
- Ægir Karl Ægisson, tilnefndur af Kennarasambandi Íslands.
- Þór Hauksson Reykdal, tilnefndur af mennta- og barnamálaráðuneyti.
- Heiðrún Björk Gísladóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins.
- Þóra Einarsdóttir, tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins.
- Arne Friðrik Karlsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
- Eyjólfur Sturlaugsson, tilnefndur af Símennt, samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva.
- Kristjana Ingibergsdóttir, tilnefnd af Skólameistarafélagi Íslands.
- Björn Finnbogason, tilnefndur af Vinnumálstofnun.
- Þórir Gunnarsson, tilnefndur af Þroskahjálp.
- Sunna Elvíra Þorkelsdóttir, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands.
Starfsmenn hópsins eru:
Áslaug Melax, sérfræðingur hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, og Hildur Margrét Hjaltested, lögfræðingur hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.
Gert er ráð fyrir að starfhópurinn ljúki störfum fyrir 1. maí 2023.
Í samræmi við reglur um nefndarstörf á vegum ríkisins er ekki greitt sérstaklega fyrir setu í starfshópnum.
Skipaður af félags- og vinnumarkaðsráðherra í desember 2022.