Hoppa yfir valmynd

Starfshópur um útfærslu tillagna um fyrirkomulag þjónustu vegna ofbeldis.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Starfshópnum er falið er að skoða og meta hvaða laga- og reglugerðabreytinga er þörf sbr. tillögur ofangreinds starfshóps, kostnaðarmeta tillögur hópsins og forgangsraða þeim. Starfshópurinn hafi einnig til hliðsjónar niðurstöður greiningar á stöðu þjónustumiðstöðva sem veita þolendum ofbeldis stuðning og ráðgjöf sem unnin var að beiðni Ríkislögreglustjóra, í samvinnu við félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra. Þá skal starfshópurinn hafa víðtækt samráð við hagaðila og aðra sem koma að þjónustu við þolendur og gerendur ofbeldis. 


Starfshópinn skipa eftirfarandi fulltrúar: 

  • Arndís Soffía Sigurðardóttir, án tilnefningar, formaður.
  • Lovísa Lilliendahl, tilnefnd af félags- og vinnumarkaðsráðuneyti
  • Ingigerður Bjarndís Írisar Ágústsdóttir, tilnefnd af forsætisráðuneyti
  • Kjartan Jón Bjarnason, tilnefndur af dómsmálaráðuneyti
  • Ester Petra Gunnarsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti
  • Hjalti Ómar Ágústsson, tilnefndur af Jafnréttisstofu
  • Eygló Harðardóttir, tilnefnd af Ríkislögreglustjóra
  • Óli Ingi Ólason, tilnefnd af Ríkissaksóknara
  • Þóra Kemp, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir, tilnefnd af Bjarkarhlíð
Í samræmi við reglur um nefndarstörf á vegum ríkisins er ekki greitt sérstaklega fyrir setu í starfshópnum.
Tímabundnar nefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum