Hoppa yfir valmynd

Stýrihópur og sérfræðingateymi sem hefur það hlutverk að hafa yfirsýn yfir vinnu við endurkoðun á örorkulífeyriskerfinu

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ríkisstjórn Íslands hefur skipað stýrihóp fjögurra ráðuneyta; forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis, undir stjórn félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, og er hlutverk hópsins að hafa yfirsýn yfir vinnu félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins er snýr að endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Stýrihópnum er ætlað að hafa yfirlit yfir aðgerðir og framgang tímasettrar verkefnaáætlunar ráðuneytanna og skila greinargerð um störf hópsins í lok skipunartíma sem er 1. júní 2024.

Steingrímur J. Sigfússon hefur verið skipaður formaður stýrihópsins. Aðrir meðlimir eru:

  • Henný Hinz, tilnefnd af forsætisráðuneyti,
  • Óli Björn Kárason, tilnefndur af fjármála og efnahagsráðuneyti,
  • Eygló Harðardóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti.

Fyrir stýrihópinn starfar sérfræðingateymi, með fulltrúum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis, sem vinnur að undirbúningi, útfærslum og innleiðingu breytinga á greiðslu- og þjónustukerfi almannatrygginga fyrir einstaklinga með mismikla starfsgetu eða heilsubrest sem hefur áhrif á starfsgetu viðkomandi með áherslu á starfsendurhæfingu og aukna möguleika til þátttöku á vinnumarkaði.

Klara Briem, verkefnisstjóri í félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, mun leiða vinnu sérfræðingateymisins og vera tengiliður við stýrihóp ráðuneytanna. Áhersla verður á víðtækt samráð við helstu hagsmunaaðila, stofnanir, önnur ráðuneyti og aðra hlutaðeigandi eftir því sem við á.

Sérfræðingateymið er þannig skipað:

Aðalmenn:

  • Klara Briem,  án tilnefningar, verkefnastjóri, frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti,
  • Ágúst Þór Sigurðsson, án tilnefningar, frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti,
  • Hilda Hrund Cortez, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Selma Margrét Reynisdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti.

Varamenn:

  • Jóhanna Lind Elíasdóttir, án tilnefningar, frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti,
  • Guðmann Ólafsson, tilnefndur af heilbrigðisráðuneyti,
  • Steingrímur Ari Arason, tilnefndur af fjármála – og efnahagsráðuneyti
Tímabundnar nefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum