Mál nr. 7/2011
Ár 2011, miðvikudaginn 5. október, var af yfirfasteignamatsnefnd í máli nr. 7/2011 kveðinn upp svohljóðandi
ÚRSKURÐUR
Með bréfi dagsettu 15. ágúst 2011, sem barst yfirfasteignamatsnefnd 19. ágúst 2011, kærði Björn Jakob Björnsson hdl., fyrir hönd SMI ehf., kt. 470296-2249, til yfirfasteignamatsnefndar synjun Þjóðskrár Íslands um að endurskoða fasteignamat Smáratorgs 3, Kópavogi, fyrir árin 2009 og 2010. Krafist er að yfirfasteignamatsnefnd endurákvarði fasteignamat eignarinnar fyrir árin 2009 og 2010.
Með bréfi 7. september 2011 gaf yfirfasteignamatsnefnd umboðsmanni kæranda tækifæri til að koma á framfæri nánari rökstuðningi vegna gildistíma fasteignamats og varðandi kærufrest.
Lögmaður kæranda sendi yfirfasteignamatsnefnd frekari sjónarmið um kærufrest með bréfi 20. september 2011.
Málið var tekið til úrskurðar 28. september 2011.
Sjónarmið kæranda
Í kæru segir að Þjóðskrá Íslands hafi hinn 12. apríl 2011 hafnað að taka til endurskoðunar fasteignamat hinnar kærðu eignar fyrir árin 2009 og 2010. Rakið er að kærandi hafi á árinu 2010 gert athugasemdir við fasteignamat fyrir árið 2011 og að loknu endurmatsferli hafi Þjóðskrá Íslands lækkað fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2011 úr 4.466.250.000 kr. í 3.500.000.000 kr. Með vísan til þessa telur kærandi einsýnt að þegar Þjóðskrá Íslands mat eignina í árslok 2008 hafi ekki verið staðið réttilega að mati. Kærandi telur að eignin hafi verið ofmetin vegna áranna 2009 og 2010 og hann hafi greitt of há fasteignagjöld, byggð á röngu fasteignamati fyrir þessi tvö ár.
Í viðbótarrökstuðningi kæranda kemur fram að nefndin eigi að taka kæruna til efnismeðferðar þótt þriggja mánaða kærufrestur hafi verið liðinn þegar kæran barst nefndinni vegna þess að það hafi verið afsakanlegt að kæran hafi ekki verið send fyrr og að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Vísað er til þess að kæranda hafi ekki verið tilkynnt um synjun Þjóðskrár Íslands, heldur aðeins Verkfræðistofu Guðmundar G. Þórarinssonar. Þá er vísað til þess að Þjóðskrá Íslands hafi ekki leiðbeint um kæruheimild. Hvað veigamiklar ástæður varðar er vísað til þess að fjárhagslegir hagsmunir kæranda séu miklir.
Niðurstaða
Í kæru er krafist endurskoðunar á fasteignamati Smáratorgs 3, Kópavogi. Tilgreint er að fastanúmer eignarinnar sé 222-7650. Þetta fastanúmer vísar til eignarinnar við Hagasmára 1, Kópavogi, sem er ekki skráð í eigu kæranda. Smáratorg 3, Kópavogi, sem er skráð í eigu kæranda, hefur fastanúmerið 228-9966. Yfirfasteignamatsnefnd telur að hér hafi orðið innsláttarvilla, sem hér með leiðréttist.
Í þessu máli var ákvörðun Þjóðskrár Íslands, um að hafna kröfu um endurmat vegna fasteignamats fyrir árin 2009 og 2010, tilkynnt með bréfi 12. apríl 2011. Bréf þetta sendi Þjóðskrá Íslands til Verkfræðistofu Guðmundar G. Þórarinssonar, sem hafði hinn 7. mars 2011 gert skriflegar athugasemdir fyrir hönd kæranda og óskað endurmats. Yfirfasteignamatsnefnd telur að þessari tilkynningu hafi réttilega verið beint til umboðsmanns kæranda, sama aðila og kom fram fyrir hönd kæranda þegar erindið var sent til stofnunarinnar. Ákvörðun Þjóðskrár Íslands frá 12. apríl 2011 ber hins vegar ekki með sér leiðbeiningar um kæruheimild eða kærufrest. Með vísan til þessa telur yfirfasteignamatsnefnd ekki rétt að vísa málinu frá vegna kærufrests.
Kærandi, SMI ehf., er eigandi fasteignarinnar við Smáratorg 3 í Kópavogi, fnr. 228-9966. Það leiðir af 1. mgr. 31. gr. laga nr. 6/2001 að eigandi getur krafist endurskoðunar á skráðu matsverði fasteignar sinnar. Í þessu tilviki var krafa kæranda um endurskoðun fasteignamats vegna áranna 2009 og 2010 sett fram 7. mars 2011. Þá var skráð fasteignamatsverð eignarinnar það matsverð sem tekið hafði gildi hinn 31. desember 2010, sbr. 1. mgr. 32. gr. a. laga nr. 6/2001 um gildistíma skráðs fasteignamatsverðs. Að mati yfirfasteignamatsnefndar, með vísan til orðalags 1. mgr. 31. gr., er heimild eiganda til þess að krefjast endurskoðunar á fasteignamati bundin við skráð matsverð á þeim tíma sem kæra er fram sett. Heimildin nái hins vegar ekki til endurskoðunar á fasteignamati sem fallið var úr gildi, þegar krafa kom fram. Þar sem fasteignamatsverð Smáratorgs 3 fyrir árin 2009 og 2010 var ekki lengur skráð matsverð eignarinnar þegar kærandi setti fram kröfu sína um endurskoðun, verður að hafna kröfu hans. Samkvæmt framangreindu ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Þjóðskrár Íslands.
Úrskurðarorð
Staðfest er ákvörðun Þjóðskrár Íslands frá 12. apríl 2011 um að synja um endurskoðun fasteignamats Smáratorgs 3, Kópavogi, fnr. 228-9966, fyrir árin 2009 og 2010.
Reykjavík, 5. október 2011,
________________________________
Jón Haukur Hauksson
________________________________ Inga Hersteinsdóttir |
________________________________ Ásta Þórarinsdóttir |