Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2006 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra skoðaði afleiðingar sinubrunans á Mýrum í dag

ljósm. Guðmundur Guðjónsson.
Ráðherra skoðar afleiðingar af sinubruna við Skíðsholt á Mýrum með fylgdarliði og heimamönnum.

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra fór vestur á Mýrar í dag og skoðaði afleiðingar sinubrunans mikla ásamt forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, sérfræðingum stofnunarinnar og fulltrúum heimamanna. Landsvæðið sem brann er alls um 67 ferkílómetrar, sem er álíka stórt svæði og allt höfuðborgarsvæðið eins og fram hefur komið.

Auk þess að fara skoðunarferð um brunasvæðið ræddi ráðherra við fulltrúa Borgarbyggðar um áhrif stórfelldra sinuelda og stjórn og skipulag slökkvistarfsins og þær rannsóknir sem framundan eru. Umhverfisráðherra hefur þegar falið Náttúrufræðistofnun Íslands að rannsaka áhrif eldanna á lífríkið og mun stofnunin fylgist náið með framvindu gróðurs og dýrlífs á svæðinu á næstu árum. Þá hefur ráðherra falið Brunamálastofnun að fjalla um mögulegar aðgerðir til að draga úr hættu vegna hugsanlegra sinuelda hér á landi.Afleiðing sinubrunans á Mýrum. Ljósm.: Guðmundur Guðjónsson

Eftir ferðina sagði umhverfisráðherra:

„Það jafnast ekkert á við að sjá hlutina með eigin augum og vettvangsferðin var fyrst og fremst farin til þess. Svæðið sem brann er mun stærra en ég hafði gert mér grein fyrir eftir að skoða myndir og kort og heyra tölur. Þrátt fyrir þetta er athyglisvert hve mikið þrekvirki hefur verið unnið við slökkvistarf, því að það tókst að hefta eldinn á mikilvægum stöðum og koma þannig í veg fyrir að hann breiddist út um enn stærra svæði þar sem mannvirkjum hefði stafað meiri ógn af honum.

Greinilegt er að miklar skemmdir hafa orðið á gróðri, en hann hefur þó farið misjafnlega illa út úr brunanum. Það verður áhugavert að fylgjast með rannsóknum Náttúrufræðistofnunar á því hvernig gróðurinn tekur við sér og það er mikið lán að nýlega skuli hafa verið gerð gróðurfarskort fyrir þetta svæði. Sums staðar má búast við að gróðurfar verði svipað og var fyrir brunann en annars staðar verður að gera ráð fyrir miklum breytingum á gróðurfari og öðru lífríki. Sá gróður sem hefur farið sérstaklega illa út úr eldinum er fjalldrapi og bláberjalyng. Ánægjulegt var þó að sjá að þrátt fyrir að allt væri meira og minna svart á svæðinu var þar nokkuð af fugli, til að mynda bæði gæsir, álftir og rjúpur. Litlar upplýsingar eru til hér á landi um áhrif sinubruna á fuglalíf og þarf að leita til Skotlands til að finna rannsóknir á því.

Ég tel mikilvægt að við drögum lærdóm af þessum bruna og hef þess vegna sent Brunamálastofnun beiðni um að fjalla um aðgerðir til að draga úr hættu vegna slíkra bruna. Það er einnig mikilvægt að koma skilaboðum til almennings um það hve meðferð elds í náttúrunni getur verið hættuleg og hversu gífurlegt tjón og stundum óbætanlegt getur hlotist af ef fólk gleymir sér augnablik.“

Fréttatilkynning nr. 9/2006
Umhverfisráðuneytið


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum