Hoppa yfir valmynd
27. janúar 2005 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisráðherra leggur fram rjúpnafrumvarp



Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og er það nú til umfjöllunar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Í frumvarpinu er lagt til að umhverfisráðherra verði heimilt að takmarka veiðar við ákveðna daga og ákveðinn tíma sólarhringsins og að ráðherra geti við tilteknar aðstæður bannað sölu á veiðibráð. Frumvarpið er liður í þeim áformum að rjúpna­veiðar verði heimilar á ný haustið 2005.

Tildrög málsins eru þau að í júlímánuði 2003 ákvað þáverandi umhverfisráðherra að friða rjúpu frá og með árinu 2003 til og með 2005 vegna bágs ástands stofnsins. Við talningu á rjúpu s.l. vor kom síðan fram að stofninn hafði tvöfaldast á milli áranna 2003 og 2004, sem sýnir að stofninn er í mikilli uppsveiflu. Þetta bendir til þess að mögulegt sé að stunda takmarkaðar veiðar í framtíðinni með því að koma á markvissri stjórnun en slíkri breytingu verður aðeins komið á með lagabreytingu.

Í framhaldi af niðurstöðum talningarinnar ákvað umhverfisráðherra Sigríður Anna Þórðardóttir að fela svokallaðri rjúpnanefnd að gera tilllögu að frumvarpi til laga um breytingu á áðurnefndum lögum með það að markmiði að tryggja að rjúpnaveiðar verði sjálfbærar þegar þær hefjast á ný til að ekki þurfi að grípa til aftur veiðibanns. Í nefninni eiga sæti fulltrúar umhverfisráðuneytisins, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Umhverfis­stofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Fuglaverndarfélags Íslands, Skotveiði­félags Íslands og Bændasamtaka Íslands. Um tillöguna ríkti full eining meðal nefndar­manna.

Frumvarpið sem nú er lagt fram byggir í megindráttum á tillögum nefndarinnar að því frátöldu að ekki er að svo stöddu lagt til að heimilt verði að setja kvóta á fuglaveiðar eins og nefndin lagði til. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að umhverfisráðherra verði heimilt, þegar friðun einstakra fuglategunda er aflétt, að takamarka veiðar við ákveðna daga og ákveðinn tíma sólarhringsins. Enn fremur að umhverfisráðherra verði heimilt að banna sölu á afurðum þeirra fugla sem undir lögin falla þ.e.a.s. á veiðibráð og afurðum þeirra. Með sölu er átt við hvers konar afhendingu gegn endurgjaldi. Þessar heimildir umhverfisráðherra geta samkvæmt frumvarpinu náð til allra fuglastofna sem heimilt er að veiða. Með því er lagður grundvöllur að nýju stjórnkerfi rjúpnaveiða sem getur einnig nýst sem fyrirmynd að stjórn veiða á öðrum fuglastofnum í framtíðinni eftir því sem aðstæður krefjast.

Fréttatilkynning nr. 4/2005
Umhverfisráðuðneytið



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum