Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2004 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samræmd stefnumörkun um málefni hafsins

Hafid_kapa_litil
Hafid_kapa_litil

Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær á Degi umhverfisins 25. apríl var samþykkt samræmd stefnumörkun um málefni hafsins að tillögu umhverfis- sjávarútvegs- og utanríkisráðherra. Stefnumörkunin var unnin af samráðsnefnd ráðuneytanna þriggja og grundvallast á því að viðhaldið sé heilbrigði hafsins, líffræðilegum fjölbreytileika og framleiðni í hafinu, þannig að sjálfbær nýting auðlinda hafsins geti áfram verið einn af þeim mikilvægu þáttum er tryggja góða lífsafkomu og velferð Íslendinga.

Í stefnumörkuninni er lögð áhersla á að virk þátttaka og frumkvæði Íslands á alþjóðavettvangi sé grundvöllur þess að vinna sjónarmiðum sjálfbærrar þróunar fylgi og þar með sjónarmiðum Íslands er kemur að málefnum hafsins. Við vinnu og mótun heildarstefnu í málefnum hafsins var leitast við að draga saman á einn stað fyrirliggjandi stefnumörkun, skuldbindingar og áherslur. Jafnframt eru lagðar nýjar áherslur og gerðar tillögur um leiðir að markmiðum. Stefnumörkunin er í senn stefna og upplýsinga- og fræðslurit fyrir starfsfólk stjórnsýslunnar og almenning, innanlands sem utan, um stefnu Íslands í málefnum hafsins.

Umhverfisráðherra og sjávarútvegsráðherra munu kynna stefnumörkunina á fréttamannafundi, föstudaginn 7. maí, og verður fundurinn boðaður sérstaklega.   Nánar...

 

Fréttatilkynning nr. 15/2004
Umhverfisráðuneytið

Hafid_LOW1
Hafid_LOW1

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum