Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Unnið að aukinni vernd friðaðra fugla

Þessi fálki var rannsakaður og hann reyndist vera með skotsár á höfði og baki. Mynd: Ólafur K. Nielsen.
Fálki með skotsár

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett af stað vinnu til að bregðast við rannsóknum Náttúrufræðistofnunar Íslands sem sýna fram á að skothögl finnast í fimmta hverjum erni og fjórða hverjum fálka sem fundist hafa dauðir hér á landi. Báðar tegundirnar eru friðaðar og skráðar á válista vegna þess hve fáliðaðir stofnarnir eru. Talið er að 65 varppör séu í íslenska arnarstofninum og 300 – 400 pör í fálkastofninum.
Í kjölfar niðurstöðu rannsókna Náttúrufræðistofnunar hefur umhverfisráðherra ákveðið að semja reglugerð sem fjallar meðal annars um verslun með friðaða fugla. Hún verður unnin í samráði við Náttúrufræðistofnun Íslands og Umhverfisstofnun Þá verður Umhverfisstofnun falið að efla fræðslu um bann við veiðum á örnum og fálkum.

Frétt Náttúrufræðistofnunar um rannsóknir á fálkum og örnum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum