Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Bein útsending vegna fyrirhugaðra breytinga á örorkulífeyriskerfinu: Öll með

Einfaldara og réttlátara örorkulífeyriskerfi verður kynnt á fundi Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kl. 11:00 í dag. Yfirskrift fundarins er „Öll með“ og verður kynningin send út í beinu streymi. 

Hér er hægt að horfa á útsendinguna með texta:
Útsending með íslenskum texta í rauntíma

Auk ráðherra flytja á fundinum innlegg þær Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK, Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Huld Magnúsdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar. Fundarstjóri er Þuríður Harpa Sigurðardóttir.

„Fólk á ekki að mæta þröskuldum heldur þjónustu,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

„Við umbyltinguna tökum við betur utan um fólk en áður, hvort sem það tekur þátt á vinnumarkaði eða ekki. Leiðarljósið er skýrt: Að stuðla að bættum kjörum og meira öryggi og vellíðan fólks. Grunnhugsunin er sú að við séum öll með og skiptum öll máli.“

Dagskrá:

Öll með: Einfaldara og réttlátara örorkulífeyriskerfi
    • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra

Spennandi tímar fram undan
    • Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK 
    • Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
    • Huld Magnúsdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar

Öll með

Fyrirhugaðar breytingar fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi. Þá er stuðningur aukinn við fólk meðan á endurhæfingu þess stendur, samvinnu þjónustuaðila komið á og áhersla lögð á að hindra að fólk falli á milli kerfa.

Lengi hefur verið brýnt að endurskoða örorkulífeyriskerfið og mælti ráðherra á dögunum fyrir frumvarpi á Alþingi vegna breytinganna

Frumvarpið var unnið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og er afrakstur víðtæks samráðs við helstu haghafa, stofnanir, önnur ráðuneyti og aðra hlutaðeigandi.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum