Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2024 Forsætisráðuneytið

Annað ráðuneyti Bjarna Benediktssonar skipað

Ríkisráð Íslands við skipun annars ráðuneytis Bjarna Benediktssonar. - myndLjósmynd/Eyþór Árnason

Ríkisráð Íslands kom saman til tveggja funda á Bessastöðum í kvöld. Á fyrri fundinum endurstaðfesti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, tillögur sem staðfestar höfðu verið utan ríkisráðs, þ. á m. tillögu Katrínar Jakobsdóttur um að veita ráðuneyti hennar lausn frá störfum. Á seinni fundinum féllst forseti Íslands á tillögu Bjarna Benediktssonar, alþingismanns, um skipun annars ráðuneytis hans og gaf út úrskurð um skiptingu starfa ráðherra sem er með eftirfarandi hætti:

  • Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
  • Svandís Svavarsdóttir, innviðaráðherra
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
  • Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra
  • Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra
  • Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra

Áframhaldandi stjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs byggir á grunni sáttmála flokkanna um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis frá 28. nóvember 2021.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum