Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2024 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ný stjórn Markáætlunar á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, hefur skipað nýja stjórn Markáætlunar á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar, sbr. 9. gr. laga nr. 3/2003 um opinberan stuðning við vísindarannsóknir. Skipunartími stjórnar er til 1. apríl 2027. Stjórnin er skipuð þremur einstaklingum úr stjórn Rannsóknasjóðs og þremur einstaklingum úr stjórn Tækniþróunarsjóðs.

Markáætlun á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar nær yfir stefnumótandi áætlanir þar sem um er að ræða tímabundinn forgang á fjármagni. Markáætlun veitir styrki til grunnrannsókna og hagnýtra verkefna og skulu verkefni vera unnin í nánu samstarfi fyrirtækja, rannsóknarstofnana og háskóla á einstökum sviðum eða þverfaglegum fræðasviðum á grundvelli vandaðra rannsóknaráætlana. Markmið verkefna skulu falla að almennum áherslum og markmiðum ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun.

Stjórn Markáætlunar á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar 2024-2027 skipa:

Aðalmenn

  • Lárus Thorlacius, formaður, Háskóli Íslands.
  • Guðrún Inga Ingólfsdóttir, varaformaður, Lífsverk.
  • Ármann Gylfason, Háskólinn í Reykjavík.
  • Kjartan Hansson, Helix health.
  • Stefanía Bjarney Ólafsdóttir, Avo.
  • Þóra Pétursdóttir, Háskólinn í Osló, Noregi.

Varamenn

  • Anna Karlsdóttir, Controlant.
  • Björn Lárus Örvar, Orf Líftækni.
  • Björn Þór Jónsson, Háskólinn í Reykjavík.
  • Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir, Carbfix.
  • Þórður Óskarsson, Moffitt Cancer Center, Bandaríkjunum.
  • Þorgerður Einarsdóttir, Háskóli Íslands.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum