Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum

List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn. 

List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum menningar - og viðskiptaráðuneytis, sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

Starfandi listamenn sem og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 17. mars 2024.

Mat á umsóknum

Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviðburðir og verkefni skulu í öllum tilvikum unnin af metnaði og af fagfólki. Við mat á umsóknum er valnefnd heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.

Ákvörðun úthlutunar mun liggja fyrir eigi síðar en 17. maí 2024.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu List fyrir alla, listfyriralla.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum