Um ráðherra

Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfis- og auðlindaráðherra

Sigurður Ingi Jóhannsson Sigurður Ingi Jóhannsson.

Sigurður Ingi Jóhannsson er fæddur 20. apríl 1962. Eiginkona Sigurðar Inga er Ingibjörg Elsa Ingjaldsdóttir framkvæmdastjóri og alls eiga þau fimm börn.

Sigurður Ingi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni árið 1982 og embættisprófi í dýralækningum frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn (KVL).

Sigurður Ingi var bóndi í Dalbæ í Hrunamannahreppi á árunum 1987-1994 og var samhliða bústöfrum sjálfstætt starfandi dýralæknir í uppsveitum Árnessýslu 1990-1995. Hann var settur héraðsdýralæknir í Hreppa- og Laugarásumdæmi 1992-1994 og um skeið í Vestur-Barðastrandarumdæmi. Þá var hann dýralæknir hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands ehf. 1996-2009 og oddviti Hrunamannahrepps frá 2002 allt þar til hann settist á þing árið 2009.

Pólítísk störf:

Fulltrúi í sveitarstjórn Hrunamannahrepps frá 1994, varaoddviti 1994-1998, oddviti 2002-2009.
Ritari stjórnar Framsóknarfélags Árnessýslu 2001-2008.
Fulltrúi í héraðsnefnd Árnesinga frá 2002.
Fulltrúi í stjórn Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands 2002-2007, varaformaður 2006-2007.
Fulltrúi í heilbrigðisnefnd Suðurlands 2006-2009.
Oddviti oddvitanefndar uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps 2006-2009.
Formaður stjórnar skipulags- og byggingafulltrúaembættis uppsveita Árnessýslu 2008-2009.
Formaður skipulags- og bygginganefndar uppsveita Árnessýslu 2006-2008.
Fulltrúi í samgöngunefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 2003-2006.
Varaformaður stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 2007-2009.
Fulltrúi í Þingvallanefnd síðan 2009.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2009-2011.
Þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010.
Atvinnuveganefnd frá 2011.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins frá 2009.
Varaformaður Framsóknarflokksins síðan 2013.


Sigurður Ingi var kosinn alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi í apríl árið 2009 og var 4. varaforseti Alþingis árin 2011–2013. Hann tók við embætti umhverfis- og auðlindaráðherra 23. maí 2013 og sama dag við embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica