Kuðungurinn
Kuðungurinn
umhverfisviðurkenning umhverfisráðuneytisins
Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem er veitt árlega.
Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta Kuðunginn fyrir árið 2009. Kuðungurinn verður afhentur á degi umhverfisins 25. apríl.
Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur sem er tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Til að koma til álita við veitingu Kuðungsins þarf fyrirtækið eða stofnunin að hafa skarað fram úr á einu eða fleiri eftirtöldum sviðum: Umhverfisstjórnun, innleiðingu nýjunga í umhverfisvernd, hreinni framleiðslutækni, lágmörkun úrgangs, mengunarvörnum, umhverfisvænni vöruþróun, framlagi til umhverfismála eða vinnuumhverfi.
Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en 25. mars næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn 2009", á póstfangið postur@umhverfisraduneyti.is eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.
Úthlutunarnefnd Kuðungsins hefur verið skipuð. Í henni sitja Sigþrúður Jónsdóttir formaður, skipuð af umhverfisráðherra, Guðmundur Gunnarsson fyrir hönd Alþýðusambands Íslands og Guðbergur Rúnarsson fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins.
Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:
- 2009 - Oddi.
- 2008 - Íslenska Gámafélagið.
- 2007 - Sólarræsting.
- 2006 - Bechtel.
- 2005 - Línuhönnun.
- 2004 - Orkuveita Reykjavíkur.
- 2003 - Hópbílar.
- 2002 - Árvakur.
- 2000 - Íslenska álfélagið.
- 1999 - Borgarplast.
- 1998 - Fiskverksmiðja Haraldar Böðvarssonar á Akranesi.
- 1997 - Olíufélagið.
- 1996 - Fiskverfkun KEA í Hrísey.
- 1995 - Prentsmiðja Morgunblaðsins.
- 1994 - Umbúðamiðstöðin, Gámaþjónustan og Kjötverksmiðjan Goði.
