Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðstefna um grunngerð landupplýsinga

Ráðstefnan verður þann 30. apríl.

„Á réttri leið?“ er yfirskrift ráðstefnu sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið stendur fyrir ásamt Landmælingum Íslands þann 30. apríl næstkomandi. Á ráðstefnunni verður fjallað um innleiðingu grunngerðar fyrir stafrænar landupplýsingar og INSPIRE á Íslandi.

Á ráðstefnuni verður rætt um hvert hefur miðað í innleiðingu grunngerðar fyrir stafrænar landupplýsingar og INSPIRE tilskipunarinnar á Íslandi. Fyrirlesarar verða frá nokkrum stofnunum á Íslandi sem vinna með landupplýsingar. Að auki fjalla erlendir fyrirlesarar um tengsl INSPIRE og eENVplus verkefnis Evrópusambandsins.

Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík og stendur frá kl 09:00 – 15:15. Skráning stendur til 24. apríl og má skrá sig með því að senda póst á [email protected]

Dagskrá ráðstefnunnar

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Landmælinga Íslands.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum