Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Viðurkenningar á Degi umhverfisins

Kuðungurinn afhentur.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi, Melaskóla í Reykjavík og Patreksskóla á Patreksfirði útnefndir Varðliðar umhverfisins. Við athöfnina var undirritaður viðaukasamningur við Landvernd um verkefnið Skóla á grænni grein (Grænfánaverkefnið) sem felur í sér auknar fjárveitingar til verkefnisins á þessu ári.

Kuðungurinn

Íslenskir fjallaleiðsögumenn hljóta Kuðunginn fyrir að vera brautryðjendur í náttúruvænni ferðamennsku, knúnir áfram af áhuga fyrir náttúrunni og umhyggju fyrir umhverfinu. Segir meðal annars í rökstuðningi valnefndar að umhverfisvernd hafi „alltaf verið leiðarstef í allri starfsemi fyrirtækisins og krafan um sjálfbæra ferðamennsku hefur þótt sjálfsögð forsenda.“ Fyrirtækið hafi „verið leiðandi á þessu sviði og lagt sitt af mörkum til að vekja athygli á mikilvægi þess að öll nýting ferðamannastaða taki mið af þolmörkum staðanna, jafnt náttúrulegum sem samfélagslegum. Brautryðjendastarf þess er öðrum til fyrirmyndar og hefur hjálpað til við að efla skilning meðal ferðaþjónustufyrirtækja á mikilvægi umhverfisvænna starfshátta á sama tíma og það hefur leitt til þess að öll umhverfisviðmið greinarinnar hafa orðið metnaðarfyllri.“

Verðlaunagripurinn, Kuðungurinn, sem Íslenskir fjallaleiðsögumenn hlutu, er að þessu sinni eftir listakonuna Kristínu Garðarsdóttur. Þá öðlast fyrirtækið rétt til að nýta merki verðlaunanna í kynningu á starfsemi sinni.

Varðliðar umhverfisins

Börn úr Kerhólsskóla tóku við sinni viðurkenningu. Börn úr Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi gerðu sér ferð til Reykjavíkur til að taka við sinni viðurkenningu fyrir útnefninguna Varðliðar umhverfisins..

Nemendur í 5. og 6. bekk Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi hljóta útnefninguna Varðliðar umhverfisins fyrir verkefnið Breytum rétt - mengum minna. Verkefnið gengur út á að nemendurnir safna saman smáraftækjum á borð við farsíma og tónhlöður í sérstök safnílát sem þeir hafa komið fyrir á áberandi stöðum í sveitarfélaginu. Nemendurnir hafa kynnt verkefnið með ýmsum hætti fyrir sveitungum sínum, s.s með því að skrifa í fréttablöð, útbúa kynningu fyrir samnemendur og bækling sem var dreift á netinu og í fréttablað sveitarfélagsins. Fyrir raftækin fæst svo skilagjald sem renna mun óskipt til UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Segir í umsögn valnefndar að með verkefninu Breytum rétt - mengum minna hafi nemendur í Kerhólskóla vakið athygli á neyslu og jafnvel ofneyslu á smáraftækjum og lagt sitt af mörkum til þess að gera öllum í samfélaginu kleift að skila þeim af sér á sem bestan hátt fyrir umhverfið.

Börn úr Melaskóla hlutu viðurkenningu Júlíus H. Ólafsson, kennari tók við viðurkenningunni fyrir hönd barna í 7. bekk Melaskóla en þau eru stödd á Reykjum í Hrútafirði þessa vikuna og fylgdust með athöfninni í gegn um netið..

Nemendur í 7. bekk Melaskóla í Reykjavík hljóta útnefninguna Varðliðar umhverfisins fyrir leikrit um umhverfismál sem sett var upp á jólaskemmtun skólans í desember síðastliðnum. Leikritið, sem byggir á smásögu eftir Ivan Gantschev, er ádeiluverk þar sem sjónum er beint að lífsgæðakapphlaupi og neyslumynstri nútímafólks. Um stóra uppfærslu er að ræða sem allir 80 nemendur árgangsins komu að og höfðu þeir mikil áhrif á útlit og innihald verksins. Var verkið sýnt á fjórum sýningum fyrir nemendur og foreldra. Er það mat valnefndar að „það sýni ábyrgð, áræðni og áhuga að velja að setja upp leikrit þar sem fjallað er um jafn aðsteðjandi umhverfismál og neyslu og græðgi. Nemendur vöktu athygli á málaflokknum með nýstárlegum hætti og hvöttu nærsamfélagið sitt til að taka gildismatið til endurskoðunar.“

Loks var Narfi Hjartarson, nemandi í 10. bekk

Narfi Hjartarson tekur við viðurkenningu. Narfi Hjartarson úr Patreksskóla var útnefndur Varðliði umhverfisins og tók við viðurkenningu sinni úr höndum umhverfis- og auðlindaráðherra..

í Patrekskóla – Grunnskóla Vesturbyggðar, útnefndur Varðliði umhverfisins. Narfi stofnaði Facebooksíðuna Fegrunarátak Patreksfjarðar þar sem hann fjallar um ýmislegt tengt umhverfismálum og ræktun. „Hann fer víða um sitt nánasta umhverfi vopnaður myndavél og tekur myndir af því sem betur mætti fara og kemur með uppbyggilegar ábendingar um umbætur. Einnig deilir hann góðum hugmyndum um endurvinnslu, nýtni og ræktun sem hann sankar að sér héðan og þaðan,“ segir í umsögn valnefndar sem telur frumkvæði Narfa sýna „að öll eigum við og getum haft áhrif á umhverfismál í stórum og smáum skilningi.“

Nemendur Kerhólsskóla og Narfi úr Patreksskóla gerðu sér sérstaka ferð til Reykjavíkur í dag til að veita viðurkenningum sínum viðtöku. Svo vildi hins vegar til að þeir nemendur Melaskóla sem hlutu viðurkenninguna, þ.e. 7. bekkir skólans, eru staddir í skólabúðum á Reykjum í Hrútafirði þessa vikuna. Þeir voru þó viðstaddir athöfnina með fulltingi tölvu- og fjarskiptabúnaðar og fylgdust með henni í gegn um netið. 

Aukin fjárveiting til Skóla á grænni grein

Á hátíðarathöfninni í dag undirrituðu Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar, viðauka við núgildandi samning um verkefnið Skóla á grænni grein, sem Landvernd stýrir, en það er einnig þekkt sem Grænfánaverkefnið. Viðaukinn kveður á um auknar fjárveitingar á yfirstandandi ári, m.a. í því skyni að styðja sérstaklega þátttökuskóla við að efla menntun til sjálfbærni í samræmi við aðalnámskrár. Þá mun Landvernd safna og miðla árangursríkum verkefnum milli þátttökuskóla, stuðla að auknu samstarfi milli skóla og aukinni þátttöku nærsamfélagsins í umhverfisstarfi.

Viðauki við sk. Grænfánasamning undirritaður. Viðauki við sk. Grænfánasamning undirritaður. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar og Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra undirrituðu viðaukann..


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum