Fréttir frá stofnunum

2.9.2010 www.ust.is Alþjóðlegur dagur votlendis

Á hverju ári er haldið upp á alþjóðlegan dag votlendis hjá aðildarríkjum Ramsar-samningsins og halda þjóðir á norðlægum slóðum upp á daginn þann 2. september. Á Íslandi eru þrjú Ramsarsvæði; Mývatn og Laxá (1977), Þjórsárver (1990) og Grunnafjörður (1996). Áður en svæðin voru sett á Ramsarskrána höfðu þau öll verið gerð að friðlöndum. Auk þessara þriggja svæða hafa tvö til viðbótar verið tilnefnd, Guðlaugstungur og Snæfells- og Eyjabakkasvæðið, og skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um friðlýsingu votlendissvæðis við Hvanneyri og að tilnefna svæðið á lista Ramsarsamningsins.
Lesa meira
 

1.9.2010 www.ust.is Auglýsingar utan þéttbýlis

Umhverfisstofnun berst töluvert af ábendingum um skilti sem sett eru upp meðfram vegum fjarri þeirri starfsemi sem um ræðir. Umhverfisstofnun telur að fjarlægja beri slík skilti.
Lesa meira
 

1.9.2010 Skógrækt ríkisins Nýtt deiliskipulag fyrir Heiðmörk

Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Heiðmörk ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu er nú aðgengileg á vefnum.
Lesa meira
 

1.9.2010 www.ust.is Veiðitímabil nokkurra fuglategunda hefst í dag

Veiðitímabil á öndum þ.e stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd, duggönd, skúfönd, hávellu og toppönd hefjast í dag miðvikudaginn 1. september. Helsingja er einnig leyfilegt að veiða frá og með deginum í dag utan Skaftafellssýslna en þar má ekki veiða helsingja fyrr en 25. september. Veiðar á svartfugl þ.e álku, langvíu, stuttnefju, teistu og lunda hefjast einnig í dag ásamt því að leyft er að veiða dílaskarf, toppskarf, fýl, hvítmáf, hettumáf, og ritu.

Lesa meira
 

1.9.2010 Veðurstofa Íslands Ágúst 2010

Hlýtt var í ágúst. Um vestan- og suðvestanvert landið var hann einn af fimm hlýjustu mánuðum frá upphafi mælinga en í öðrum landshlutum var heldur svalara að tiltölu, svalast á Austfjörðum. Hiti var þó alls staðar yfir meðallagi. Þurrt var sums staðar um landið norðvestanvert en fremur úrkomusamt víða annars staðar.
Lesa meira
 

31.8.2010 Skógrækt ríkisins Hver á skógræktarstefna Íslendinga að vera?

Nú gefst almenningi í fyrsta sinn kostur á að gera athugasemdir við drög að stefnumótun í skógræktarmálum Íslendinga.

Lesa meira
 

31.8.2010 Veðurstofa Íslands Rannsóknarverkefnið Loftslag og orkukerfi (CES): lokaráðstefna

Alþjóðleg lokaráðstefna norræna rannsóknarverkefnisins Loftslag og orkukerfi (Climate and Energy Systems, CES) var haldin í Osló 31. maí til 2. júní síðastliðinn. Kynntar voru rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á orkuframleiðslu og orkukerfi. Verkefnið er það þriðja í röðinni frá 2001 og hafa þau öll verið undir stjórn Veðurstofu Íslands og fyrrum Vatnamælinga.

Lesa meira
 

30.8.2010 www.ust.is Verður efnið sem þú notar löglegt eftir 1. desember?

Nú hefur Efnastofnun Evrópu útbúið lista yfir efni sem fyrirtæki í Evrópu ætla að skrá fyrir 1. desember 2010. Fyrirtæki á Íslandi sem flytja inn efnavörur frá löndum innan Evrópu þurfa að vera viss um að efnið þeirra sé á þessum lista því ef erlendi birgirinn skráir ekki efnið þá verður það ólöglegt á markaði eftir 1. nóvember.
Lesa meira
 

26.8.2010 Skógrækt ríkisins Skeggjaður viðardrumbur

Þessi öldungur barst inn á skrifstofu Héraðs- og Austurlandsskóga fyrr í sumar og hefur vakið töluverða athygli gesta og gangandi. Um er að ræða fléttuna „birkiskegg".

Lesa meira
 

26.8.2010 Skógrækt ríkisins Sveppanámskeið í Heiðmörk

Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir sveppanámskeiði í Heiðmörk laugardaginn 4. september kl. 14:00.
Lesa meira
 

25.8.2010 Veðurstofa Íslands Leyndardómar Grænlandsjökuls

Ráðstefna haldin í Háskóla Íslands 27.- 29. ágúst 2010. Hún ber undirtitilinn Vitnisburður ískjarna, setlaga og jökla um loftslagsbreytingar og eldgosasögu og er haldin í tilefni af 70 ára afmæli Sigfúsar J. Johnsens, eðlis- og jöklafræðings við Hafnarháskóla. Sunnudaginn 29. ágúst er dagskráin opin öllum og á íslensku.
Lesa meira
 

24.8.2010 Skógrækt ríkisins Birkisafi í fyrsta sinn framleiddur og seldur hérlendis

Á Hallormsstað starfar nú lítið fyrirtæki sem framleiðir afurðir úr birkisafa, sultur og annað góðgæti.

Lesa meira
 

23.8.2010 Veðurstofa Íslands Jarðskjálftar í júlí 2010

Um 1500 jarðskjálftar voru staðsettir með SIL mælakerfi Veðurstofunnar í júlí. Stærsti atburður mánaðarins var skjálftahrina norðan við Grímsey og hófst hún 22. júlí.
Lesa meira
 

23.8.2010 Skógrækt ríkisins Er ösp hættuleg mannvirkjum í Reykjavík?

Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, skrifar um öspina og fullyrðingar þess efnis að hún sé hættuleg mannvirkjum.

Lesa meira
 

20.8.2010 www.ust.is Gæsaveiðitímabilið að hefjast

Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst í dag föstudaginn 20. ágúst. Helsingja er leyfilegt að veiða frá 1. september utan Skaftafellssýslna en þar má ekki veiða helsingja fyrr en 25. september.
Lesa meira
 

20.8.2010 www.ust.is Hreindýraveiðar - lokun á svæði 9

Veiðisvæði 9 verður lokað fyrir allar hreindýraveiðar frá og með 21. ágúst 2010. Svæðið samanstendur af Hornafirði, áður Mýrahreppi og Borgarhafnarhreppi (Suðursveit).
Lesa meira
 

18.8.2010 Skógrækt ríkisins Betri aðstaða við Grundarreit

Við Grundarreit í Eyjafirði hefur verið gert nýtt aðkomuplan fyrir gesti og verður af því tilefni efnt til skógargöngu í samvinnu við Skógræktarfélag Eyfirðinga á morgun, fimmtudag.

Lesa meira
 

18.8.2010 Skógrækt ríkisins Samstarf Þjórsárskóla og Skógræktar ríkisins

Skógræktin og Þjórsárskóli standa fyrir kynningu á samstarfi sínu fimmtudaginn 2. september á lóð Þjórsárskóla. Kynningin er ætluð öllum áhugasömum gerð nytjahluta úr skógarefni.

Lesa meira
 

18.8.2010 www.ust.is Leyfi til neðansjávarrannsókna við Surtsey og við Hverastrýtur í Eyjafirði

Umhverfisstofnun bárust nýlega umsóknir frá íslenskum vísindamönnum vegna rannsóknaleyfa til neðansjávarrannsókna sem fyrirhugaðar voru vegna komu M/Y Octopus rannsóknarskips til landsins.
Lesa meira
 

17.8.2010 Náttúrufræðistofnun Ísland Pödduvefur Náttúrufræðistofnunar 1 árs!

Ár er liðið síðan pödduvefur Náttúrufræðistofnunar var settur á laggirnar. Markmiðið með vefnum er að fræða unga sem aldna um ýmsar tegundir smádýra á landi og í vötnum á Íslandi. Vefurinn hefur notið mikilla vinsælda og nýir pöddupistlar bætast við í viku hverri.

Lesa meira
 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica