Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kynning á breytingum á örorkulífeyriskerfinu – bein útsending 22. apríl kl. 11:00

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kynnir viðamiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu í beinni útsendingu mánudaginn 22. apríl kl. 11:00. Fundinum verður streymt á vef Stjórnarráðsins. Markmið breytinganna er að einfalda örorkulífeyriskerfið, draga úr tekjutengingum og gera kerfið réttlátara. 

Fyrirhugaðar breytingar fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi – sérstaklega fyrir þau sem einungis fá greiðslur frá almannatryggingum eða eru með litlar aðrar tekjur. Þá er stuðningur aukinn við fólk meðan á endurhæfingu þess stendur, samvinnu þjónustuaðila komið á og áhersla lögð á að hindra að fólk falli á milli kerfa.

Lengi hefur verið brýnt að endurskoða örorkulífeyriskerfið og mælti ráðherra á dögunum fyrir frumvarpi á Alþingi vegna breytinganna

    • Sjá samantekt um fyrirhugaðar breytingar

Einfaldara og réttlátara örorkulífeyriskerfi

„Hér er umbyltingu að ræða og mestu breytingar á örorkulífeyriskerfinu frá upphafi,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

„Fólk á ekki að mæta þröskuldum heldur þjónustu. Við umbyltinguna tökum við betur utan um fólk en áður og búum til hvata til að gera því kleift að blómstra. Leiðarljósið er skýrt: Að stuðla að bættum kjörum, aukinni virkni og meira öryggi og vellíðan fólks. Grunnhugsunin er sú að við séum öll með og skiptum öll máli.“

Frumvarpið var unnið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og er afrakstur víðtæks samráðs við helstu haghafa, stofnanir, önnur ráðuneyti og aðra hlutaðeigandi.

 


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum