Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2024 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra flutti ávarp á ársfundi Seðlabankans

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands sem fram fór í Hörpu í dag.

Í ávarpinu fór forsætisráðherra yfir stöðuna í efnahagsmálum og verðbólguna sem sé nú meginviðfangsefni hagstjórnar hér á landi eins og víða annars staðar. Góð teikn hafi þó birst undanfarið. Verðbólga hafi hjaðnað og þá muni nýgerðir langtímakjarasamningar á almennum vinnumarkaði koma til með að eiga mikilvægan þátt í að skapa forsendur fyrir minnkandi verðbólgu og lækkun vaxta á næstunni.

„Ég er bjartsýn á að aðrir hópar á almennum vinnumarkaði og starfsfólk hjá hinu opinbera muni fylgja á eftir og semja á sambærilegum grunni. Það er sömuleiðis trú mín að þær aðgerðir sem ríki og sveitarfélög hafa ákveðið að ráðast í til að styðja við samningana muni skila sér í bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks, samhliða því að verðbólgan færist aftur í átt að markmiði,“ sagði forsætisráðherra.

Þá fjallaði hún um eldsumbrotin á Reykjanesskaga og þær margvíslegu efnahagslegu aðgerðir sem ráðist hefur verið í til að styðja við íbúa Grindavíkur sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín og atvinnustarfsemi á svæðinu. Um sé að ræða fordæmalitla stöðu og ýmis viðfangsefni fram undan sem greiða þurfi úr í þessu óvissuástandi sem erfitt er að segja til um hvað muni vara lengi.

Forsætisráðherra kom einnig inn á mikilvægi þess að koma á fót innlendu greiðslumiðlunarkerfi. Slíkt skapi bæði ávinning fyrir neytendur og tryggi öryggi og viðnámsþrótt kerfisins en forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi þess efnis á Alþingi í febrúar sl.

Þá vék hún máli sínu að mikilvægi þess að erlendar fjárfestingar í mikilvægum innviðum og annarri samfélagslega mikilvægri starfsemi hér á landi séu í samræmi við þjóðaröryggi. Frumvarp þess efnis var lagt fyrir Alþingi fyrr á árinu sem forsætisráðherra mælti fyrir í mars.

Ávarp forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum