Dagur umhverfisins

Dagur umhverfisins - 25. apríl

Tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni

Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Hann var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Í ár verður dagurinn tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni.

Viðburðir í tengslum við dag umhverfisins:

Sunnudagurinn 25. apríl

  • Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhendir viðurkenningar fyrir störf á sviði umhverfismála. Kuðungurinn,
    Varðliðar umhverfisins og náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti. Umhverfisráðherra mun einnig opna nýja útgáfu af vefnum náttúran.is. Þjóðmenningarhúsið kl. 12:00.
  • Gönguferð í kringum Reykjavíkurtjörn og um Vatnsmýri undir leiðsögn Fuglaverndar og Félags umhverfisfræðinga. Fræðsla um líffræðilega fjölbreytni í og við Tjörnina, þar á meðal fuglalíf og gróður. Lagt af stað frá Norræna húsinu kl. 13:00 og 15:00.
  • Tilraunalandið fyrir börn og unglinga í Norræna húsinu. Vísindin lifna við í Vatnsmýrinni. Markmið sýningarinnar er að kynna og kanna undraheima vísindanna. Opið 12:00 til 17:00.
  • Dr. Bæk skoðar og vottar reiðhjól, hjólreiðaráðgjöf og þrautabraut á vegum Landsamtaka hjólreiðamanna við Norræna húsið frá 12:00 til 16:00.
  • Býflugur og ljósmyndasýning í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Vettvangsferð kl. 15:00 með Tómasi Ó. Guðjónssyni býbónda þar sem hann fræðir gesti um drottninguna, þernur hennar og lötu druntanna. Ljósmyndasýning umhverfisráðuneytisins og Náttúrufræðistofnunar Íslands um áhrif loftslagsbreytinga á náttúru Íslands.
  • Umhverfisleikir fyrir alla fjölskylduna í Grasagarði Reykjavíkur frá 11:00 til 13:00. Öllum gefinn kostur á að skoða, hlusta og lykta af lífinu með því að taka þátt. Áhersla lögð á fuglalíf við tjarnir og öllum boðið að ganga eftir ,,ónáttúrulega stígnum“. Skemmtilegur og fróðlegur leikur.
  • Græna ljósið býður í bíó á myndina Earth. Sýnd í Háskólabíói kl. 15:00. Miðar afhentir í miðasölu frá kl. 14:30 á meðan húsrúm leyfir.
  • Sveitarfélagið Árborg efnir til dagskrár í fuglafriðlandinu í Flóa kl. 14:00. Undirritaður verður nýr samningur við Fuglaverndarfélag Íslands um umsjón og uppbyggingu í fuglafriðlandinu og fuglaskoðunarskýli Fuglaverndar verður formlega tekið í notkun. Fuglavernd verður með leiðsögn og upplýsingar á staðnum. Umhverfis- og skipulagsnefnd Árborgar veitir fyrirtæki umhverfisverðlaun.
  • Í Mosfellsbæ verður opið hús í fuglaskoðunarhúsinu við Leiruvog og útikennslusvæði Varmárskóla. Útikennslusvæðið er við Skólagarðana að Varmá og þar verður opið frá 12:00 til 14:00. Í boði verða leikir á svæðinu, kveikt verður upp í hlóðunum og boðið upp á heitan drykk. Í fuglaskoðunarhúsinu verður opið frá 10:00 til 15:00 og fuglasérfræðingar verða á staðnum og veita upplýsingar og leiðbeina um greiningu á þeim. Fuglafræðingar frá East Anglia háskólanum líta við og fræða gesti um árlegar rannsóknir sínar á jaðrakan í Leiruvogi. Fuglaskoðunarhúsið er staðsett við Langatanga neðan við golfvöllinn.

Laugardagurinn 24. apríl

  • Líf á eldfjallaeyju. Líffræðileg fjölbreytni Íslands, náttúra og náttúruöfl, auðlindir og umhverfi, dýr og plöntur, vatn, eldur og ís. Sérfræðingar Háskóla Íslands á sviði náttúru- og jarðvísinda segja frá í máli og myndum, rannsóknastofur verða opnar og fjölbreytni í fyrirrúmi. Dagskrá fyrir alla fjölskylduna frá kl. 11-15.
  • Náttúru- og umhverfisverndarsamtök á Íslandi boða til náttúruverndarþings í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð kl. 10:00-15:30. Hér má nálgast dagskrá þingsins.

Viðburðir á vegum grunnskóla sem umhverfisráðuneytið hefur fengið tilkynningar um:

  • Í Grunnskóla Snæfellsbæjar, Ólafsvík, vinna nemendur ýmis verkefni þann 23. apríl. Meðal annars á að þrífa skólalóðina, týna rusl í grenndarskógi og fjöru við Ennisbraut og reita sinu, mála vinasól og parísa á skólalóð og vinna úr söfnun einnota umbúða og könnun um notkun innkaupaplastpoka. Þá munu nemendur grunnskólans búa til skilti fyrir sölubása í matvöruverslunum bæjarins þar sem nemendur munu selja margnota innkaupatöskur sem þeir hafa saumað úr gömlum gallafatnaði.
  • Í Hofsstaðaskóla taka allir nemendur þátt í fjölbreyttum umhverfisverkefnum dagana 19. til 30.  apríl.  

    Allir bekkir eru hvattir til að vera með fjölbreytta útikennslu  og fimmtudaginn 29. apríl hefja allir nemendur skóladaginn  úti. Í tengslum við  listadaga í Garðabæ og þemavinnu um umhverfismál í 4. bekk mun árgangurinn  vinna að umhverfislistaverkefni úr tilfallandi efnivið. Nemendur í 4. – 7. bekk geta tekið þátt í umhverfisvefrallý, þar sem m.a. er spurt um ýmislegt er tengist umhverfismálum skólans og Garðabæjar. Einnig verða sýndar fræðslumyndir og nemendur taka þátt í umræðum er tengjast umhverfismálum.

 

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica