Alþjóðlegir umhverfissamningar - vernd dýra í landbúnaði

Evrópusamningur um vernd dýra í landbúnaði

Heiti:
- Evrópusamningur um vernd dýra í landbúnaði.
- European Convention for the Protection of Animals Kept for Farming Purposes.

Eðli samnings og vörsluaðili:
- Svæðisbundinn samningur
- Í vörslu Evrópuráðsins.
- 27 aðildarríki.

Dags.:
- Gerður í Strassborg 10. mars 1976.
- Öðlaðist gildi 10. september 1978.

Aðild Íslands:
- Undirritaður 27. janúar 1977, fullgiltur 19. september 1989, öðlaðist gildi 20. mars 1990.
Stjt. C 17/1989.

Bókanir:
- Engar.

Breytingar:
- Engar.

Stjórn:
- Ákvarðanir eru teknar í formi tilmæla um framkvæmd reglna samningsins á fundum
fastanefndar samningsaðila.
- Aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins fer með eftirlit með framkvæmd samningsins og
kveður fastanefndina til fundar eftir þörfum.

Stefnumörkun: Umhverfisráðuneytið í samráði við landbúnaðarráðuneytið
Framkvæmd: Yfirdýralæknir og Umhverfisstofnun
Þátttaka í fundum: Yfirdýralæknir og Umhverfisstofnun
Upplýsingagjöf: Yfirdýralæknir og Umhverfisstofnun

Markmið:
- Að vernda dýr í landbúnaði, og þá einkum í stórvirkum nútímabúskap.

Ákvæði:
- Samningurinn hefur að geyma reglur um aðbúnað og meðferð dýra í landbúnaði.
Samningsaðilar skulu koma í framkvæmd þeim reglum um dýravernd sem kveðið er á um
í samningnum.
- Sérstakri fastanefnd er gert að semja tilmæli (leiðbeiningar) um framkvæmd reglna
samningsins.
+ Þegar hafa verið samþykktar leiðbeiningar um: svín, kálfa, hænsnfugla, saufé og
geitfé.
+ Aðilar skuldbinda sig til að senda aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins skýrslu um
framkvæmd þessara leiðbeinandi reglna heima fyrir, eða að gera grein fyrir ástæðum
þess að þeim hefur ekki verið framfylgt.
- Hver samningsaðili getur tilnefnt eina eða fleiri stofnanir/nefndir (bodies) sem
fastanefndin getur leitað til um upplýsingar og ráðgjöf við störf sín. Samningsaðilar
skulu tilkynna aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins nöfn þeirra og heimilisfang.

Upplýsingar:

Council of Europe
F-67075 Strasbourg Cedex

Tel: +33 3 88 41 20 00
Fax: +33 3 88 41 2751/3747



Þetta vefsvæði byggir á Eplica