Hoppa yfir valmynd
20. maí 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Opinn kynningarfundur með NEFCO og NOPEF

Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) og norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NOPEF) efna til kynningar á starfsemi sjóðanna miðvikudaginn 27. maí kl. 08.15–10.00 á Grand Hótel Reykjavík. Að fundinum loknum verða fulltrúar frá sjóðunum með viðtalstíma á Grand Hótel. Vinsamlegast skráið þátttöku í fundinum í síðasta lagi mánudaginn 25. maí á netfangið: [email protected]

NEFCO

Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) er alþjóðleg fjármálastofnun í eigu ríkisstjórna Norðurlandanna. Meginmarkmið NEFCO er að fjármagna hagkvæm verkefni á grannsvæðum Norðurlandanna í Austur-Evrópu, Rússlandi og Úkraínu. Verkefnin skulu miða að því að minnka umhverfisáhrif, t.d. við öflun og nýtingu orku, í iðnaði og við meðhöndlun úrgangs.

NOPEF

Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NOPEF) er sjóður sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Meginmarkmiðið með starfsemi NOPEF er að styrkja alþjóðlega samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Norðurlöndum.

Dagskrá fundarins:

  • Setning: Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri og formaður stjórnar NEFCO.
  • Kynning á starfsemi NEFCO: Magnús Rystedt, framkvæmdastjóri NEFCO og Þórhallur Þorsteinsson, fjárfestingaráðgjafi hjá NEFCO.
  • Lán til orkusparnaðar og samstarf við NEFCO: Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP banka.
  • Kynning á starfsemi NOPEF: Brynhildur Bergþórsdóttir, formaður stjórnar NOPEF.

Heimasíða NEFCO.

Heimasíða NOPEF.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum