Hoppa yfir valmynd
24. mars 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Nýtt merki og ný útgáfu vefs Veðurstofunnar

Merki Veðurstofu Íslands.
Nýtt merki Veðurstofu Íslands

Umhverfisráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir, opnaði nýja útgáfu af vef Veðurstofu Íslands í gær, á alþjóðaveðurdeginum 23. mars. Nýja útgáfan er m.a. komin til vegna sameiningar Veðurstofu Íslands og Vatnamælinga Orkustofnunar. Stofnunin hefur einnig tekið í notkun nýtt merki.

Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á vef Veðurstofunnar. Á vefjum stofnananna beggja var mikið efni sem nú er skipulega fram sett á einum vef. Mestu breytingarnar eru á forsíðunni en einnig eru fjölmargar breytingar á undirsíðum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum