Hoppa yfir valmynd
24. júní 2008 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ríkisstjórnin styrkir vistaksturskennslu

Landvernd
Vistaksturverkefni

Ríkisstjórnin hefur nýlega samþykkt að styrkja evrópuverkefni í vistaksturskennslu um þrjár milljónir króna. Landvernd mun annast rekstur verkefnisins á Íslandi og Orkusetrið á Akureyri verður samstarfsaðili við framkvæmd þess og kynningu.

Landvernd mun sjá um kennsluna með aksturshermum sem hannaðir voru af EcoLife í Belgíu í samstarfi við Toyota í Evrópu. Verkefnið hefur verið til reynslu í 1 ár í Belgíu en nú stendur til að fjölga þátttökuþjóðum og fara af stað með verkefnið í Noregi, á Spáni, í Bretlandi og á Íslandi. Fimm aksturshermar verða fluttir til Íslands og eru þeir væntanlegir síðsumars.

Samfélagslegur ávinningur af vistakstri er mikill og margþættur og má t.d. nefna minni mengun, lægri slysatíðni, minni innflutning á eldsneyti og bætta umferðarmenningu. Stefnt er að því að kenna um 10.000 ökumönnum á 12 mánuðum en auk þess verða aksturshermarnir notaðir á viðburðum og kynningum af ýmsu tagi þar sem gestir og gangandi munu fá upplýsingar um vistakstur og tækifæri til að prófa aksturshermana. Þá verður í kynningu á átakinu horft til þess að miðla upplýsingum um lykilatriði í vistakstri.

Mælingar sýna að eyðsla og útblástur þeirra sem tileinka sér vistakstur minnkar um 5-10% en út frá því má áætla að eftir 12 mánuði muni útblástur minnka um sem nemur u.þ.b. 3.000 tonnum á ári.

Aðrir bakhjarlar verkefnisins verða Toyota á Íslandi og Vátryggingafélag Íslands (VÍS).



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum