Hoppa yfir valmynd
27. maí 1998 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Upplýsingar - Fréttatilkynningar

Fréttatilkynningar


Hér á síðunni er listi yfir fréttatilkynningar umhverfisráðuneytisins á yfirstandandi ári. Hægt er að nálgast texta viðkomandi fréttatilkynningar með því að smella á heiti hennar.

10. október 2003
Umhverfisþing hefst á þriðjudag
Umhverfisráðherra hefur boðað til umhverfisþings 14. - 15. október n.k. Þingið verður á Nordica hótelinu og hefst kl. 9. n.k. þriðjudag. Á þinginu mun umhverfisráðherra kynna drög að náttúruverndaráætlun sem lögð verða fyrir Alþingi í formi þingsályktunartillögu í vetur.
NÁNAR...

8. október 2003
Náttúruverndaráætlun 2004 - 2008
Umhverfisráðherra kynnti á blaðamannafundi í dag drög að Náttúruverndaráætlun 2004 - 2008 sem verða til umfjöllunar á Umhverfisþingi um miðjan október
NÁNAR...

1. október 2003
Ráðstefna um málefni N-Atlandshafsins
Umhverfisráðherra fjallaði í um þá ákvörðun ríkja heims að fiskveiðar verði stundaðar með sjálfbærum hætti og að það markmið nái fram að ganga eigi síðar en 2015.
NÁNAR...

26. september 2003
Heimild til rjúpnaveiði felld úr gildi
Í samræmi við ákvörðun umhverfisráðherra um að banna rjúpnaveiðar næstu þrjú árin hefur nú verið undirrituð reglugerð þar sem er felld úr gildi heimild til veiða á rjúpu.
NÁNAR...

16. september 2003
Ákvörðun Skipulagsstofnunar felld úr gildi
Ráðuneytið hefur úrskurðað að fyrirhugað eldi Austlax ehf. á allt að 8.000 tonna ársframleiðslu af laxi, regnbogasilungi og þorski í sjókvíum í Seyðisfirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum.
NÁNAR...

9. september 2003
Ný nefnd um rjúpnaverndun
Umhverfisráðherra hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að gera tillögur um aðgerðir til þess að styrkja rjúpnastofninn í framtíðinni að loknu banni við rjúpnaveiðum sem stendur næstu þrjú árin.
NÁNAR...

28. ágúst 2003
Fundir umhverfisráðherra Norðurlandanna Barentsráðsins og Eystrasaltsráðsins
Umhverfisráðherra kynnti áherslur Íslands í norrænu samstarfi á umhverfissviði á næsta ári þegar Ísland fer með formennsku í samstarfinu á fundi Norrænu umhverfisráðherranna í dag.
NÁNAR...

28. júlí 2003
Ferð umhverfisráðherra um Vestfirði
Dagana 28. - 30. júlí mun Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra skoða þau svæði á Vestfjörðum sem eru í drögum að náttúruverndaráætlun.
NÁNAR...

24. júlí 2003
Friðun rjúpnastofnsins
Umhverfisráðherra hefur ákveðið að nýta ekki heimild laga næstu þrjú árin til þess að aflétta friðun rjúpunnar. Rjúpan verður þar af leiðandi friðuð fyrir veiðum árin 2003, 2004 og 2005.
NÁNAR...

18. júlí 2003
Skoðunarferð nefndar um stofnun verndarsvæðis eða þjóðgarðs norðan Vatnajökuls
Nefnd sem umhverfisráðherra skipaði á síðastliðnu ári til þess að gera tillögu um stofnun verndarsvæðis eða þjóðgarðs á svæðinu norðan Vatnajökuls mun fara um svæði norðan jökulsins dagana 21.-23. júlí til þess að kynna sér svæðið.
NÁNAR...

16. júlí 2003
Umhverfisráðherra vísar frá stjórnsýslukærum vegna útgáfu Umhverfisstofnunar á starfsleyfi fyrir Reyðarál ehf.
Með ákvörðun umhverfisráðherra frá 14. júlí sl. var þremur kærum til ráðuneytisins, vegna útgáfu Umhverfisstofnunar þann 14. mars 2003 á starfsleyfi til handa álveri Reyðaráls ehf. á Reyðarfirði, vísað frá.
NÁNAR...

14. júlí 2003
Úrskurður Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum tvöföldunar Reykjanesbrautar staðfestur með skilyrðum.
Umhverfisráðherra staðfestir úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum tvöföldunar Reykjanesbrautar, frá Fífuhvammsvegi í Kópavogi að Álftanesvegi í Garðabæ með skilyrðum.
NÁNAR...

9. júlí 2003
Endurskoðað jarðskjálftahröðunarkort af landinu tekur gildi 15. júlí nk.
Endurskoðað jarðskjálftahröðunarkort af landinu sem byggir á úrvinnslu nýjustu jarðskjálftamælinga hér á landi hefur verið staðfest af Staðlaráði Íslands og tekur gildi 15. júlí n.k.
NÁNAR...

30. júní 2003
Ferð umhverfisráðherra um Hérað og afhending Bláfánans í Borgarfirði eystra.
Í dag mun umhverfisráðherra skoða svæði á Héraði sem tilgreind eru í drögum að náttúruverndaráætlun og afhenda Bláfánann í Borgarfirði eystra.
NÁNAR...

26. júní 2003
OSPAR fundinum í Bremen lauk í dag
Í dag lauk í Bremen í Þýskalandi fundi umhverfisráðherra aðildarríkja Samnings um vernd Norðaustur-Atlantshafsins (OSPAR).
NÁNAR...

25. júní 2003
Fundur aðildarríkja Samnings um vernd Norðaustur-Atlantshafsins (OSPAR)
Fundur umhverfisráðherra aðildarríkja OSPAR hefst í Bremen í Þýskalandi hefst í dag. Eitt af meginviðfangsefnum fundarins er mat á árangri ríkja í því að draga úr losun geislavirkra efna í hafið.
NÁNAR...

4. júní 2003
Alþjóðlegur dagur umhverfisins þann 5. júní
Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNEP, stendur fyrir Alþjóðlegum degi umhverfisins þann 5. júní ár hvert. Dagurinn er helgaður málefnum vatnsins í ár.
NÁNAR...

20. maí 2003
Alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni
Í tilefni af Alþjóðlegum degi líffræðilegrar fjölbreytni hinn 22. maí 2003, bjóða umhverfisráðuneytið og Náttúrufræðistofnun Íslands til fræðsluráðstefnu í Borgartúni 6, Reykjavík, 4. hæð, kl. 14:00 - 17:00.
NÁNAR...

19. maí 2003
Framlög til frjálsra félagasamtaka á sviði umhverfismála
Framlög umhverfisráðuneytisins til frjálsra félagasamtaka hafa aukist úr 2 milljónum króna á ári í 8 milljónir króna á ári.
NÁNAR...

2. maí 2003
Samningur um umsjón og rekstur friðlandsins á Hornströndum
Umhverfisráðherra Siv Friðleifsdóttir umdirritaði í dag samning við Ísafjarðarbæ um umsjón og rekstur friðlandsins á Hornströndum.
NÁNAR...

2. maí 2003
Ísland er innan marka Kyotobókunar
Spár um útblástur fram til ársins 2020 benda til þess að útblástur muni ekki aukast umfram þau 10% sem Kyotobókunin heimilar á skuldbindingartímabili bókunarinnar 2008-2012.
NÁNAR...

25. apríl 2003
Kuðungurinn umhverfisviðurkenning umhverfisráðuneytisins var veitt í dag
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra veitti í dag, á Degi umhverfisins, Árvakri hf. útgáfufélagi Morgunblaðsins umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn.
NÁNAR...

25. apríl 2003
Fréttatilkynning frá iðnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti
Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra undirrituðu í dag samning um innleiðingu Staðardagskrár 21 í fámennum sveitarfélögum og stuðning við áform um að gera Hrísey að sjálfbæru samfélagi.
NÁNAR...

23. apríl 2003
Dagur umhverfisins 25. apríl 2003
Dagur umhverfisins verður haldinn hátíðlegur í fimmta sinn í ár. Ráðuneytið og sveitarfélög standa fyrir fjölmörgum viðburðum í tilefni dagsins.
NÁNAR...

11. apríl 2003
Aðgerðir gegn campylobacter sýkingum spara árlega hundruð milljóna króna
Í ávarpi á málþingi um campylobacter sagði Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra að á síðustu þremur árum hafi með mjög góðum árangri verið gripið til fyrirbyggjandi aðgerða til að auka öryggi og heilnæmi íslenskra matvæla
NÁNAR...

9. apríl 2003
Íslenski haförninn er alfriðaður
Í nýgengnum dómi Hæstaréttar nr. 449/2002 var sýknað fyrir brot gegn nánar tilteknum ákvæðum í lögum nr. 64/1994 um vernd friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og fyrir brot gegn lögum um náttúruvernd, nr. 44/1999, sbr. auglýsingu nr. 425/1997.
NÁNAR...

4. apríl 2003
Umhverfisráðuneytið styrkir frjáls félagasamtök
Umhverfisráðherra hefur afgreitt styrkumsóknir frá frjálsum félagasamtakökum á umhverfissviði. Veittir voru almennir rekstrarstyrkir að upphæð 4,7 milljónir króna og 2,7 milljónir til verkefna á vegum félagasamtaka.
NÁNAR...

27. mars 2003
Formleg opnun Sorporkustöðvar Skaftárhrepps á Kirkjubæjarklaustri
Umhverfisráðherra opnaði í gær formlega nýja Sorporkustöð á Kirkjubæjarklaustri við fjölmenna athöfn.
NÁNAR...

27. mars 2003
Áfangaskýrsla um þjóðgarð norðan Vatnajökuls
Nefnd um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls hefur skilað áfangaskýrslu til umhverfisráðherra.
NÁNAR...

27. mars 2003
Staðfesting aðalskipulags Skaftárhrepps
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra staðfesti í gær aðalskipulag Skaftárhrepps sem nær til ársins 2014.
NÁNAR...

11. febrúar 2003
Nýr skrifstofustjóri á skrifstofu laga og upplýsingamála
Umhverfisráðherra skipaði í dag Sigríði Auði Arnardóttur, lögfræðing, í embætti skrifstofustjóra nýrrar skrifstofu laga og upplýsingamála í ráðuneytinu. Sigríður Auður er fyrsta konan sem gegnir stöðu skrifstofustjóra í ráðuneytinu frá upphafi.
NÁNAR...

17. janúar 2003
Fullyrðingar Konunglega breska fuglaverndarfélagsins um áhrif Kárahnjúkavirkjunar á heiðagæsastofninn
Umhverfisráðuneytið vill koma á framfæri leiðréttingum vegna fréttaflutnings í fjölmiðlum í gær þegar rætt var við Lloyd Austin framkvæmdastjóra Konunglega breska fuglaverndarfélagsins (RSPB) í Skotlandi.
NÁNAR...

16. janúar 2003
Stofnun Kvískerjasjóðs
Í gær undirritaði umhverfisráðherra skipulagsskrá Kvískerjasjóðs. Sjóðurinn er stofnaður til heiðurs Kvískerjabræðrum fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu.
NÁNAR...

7. janúar 2003
Breytingar á stofnanauppbyggingu umhverfisráðuneytisins
Um áramótin urðu mikilvægar breytingar á stofnanauppbyggingu umhverfisráðuneytisins er Umhverfisstofnun og Úrvinnslusjóður tóku til starfa.
NÁNAR...

7. janúar 2003
Ný reglugerð um mjólk og mjólkurvörur
Ný reglugerð um mjólk og mjólkurvörur nr. 919/2002 tók gildi 1. janúar 2003.
NÁNAR...

20. desember 2002
Skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu.
Umhverfisráðherra Siv Friðleifsdóttir mun í dag staðfesta svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 og aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024.
NÁNAR...

18. desember 2002
Samningur um starfsemi náttúrustofa.
Um næstu áramót munu sveitarfélög taka við rekstri náttúrustofa í samræmi við samþykkt Alþingis um breytingar á lögum nr. 60/1992.
NÁNAR...



Sjá einnig:
Fréttatilkynningar 2002
Fréttatilkynningar 2001
Fréttatilkynningar 2000
Fréttatilkynningar 1999
Fréttatilkynningar 1998

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum