Hoppa yfir valmynd
19. maí 2003 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Framlög til frjálsra félagasamtaka á sviði umhverfismála


Í tilefni af umfjöllun fréttastofu Ríkisútvarpsins um fjárhagsstöðu frjálsra félagasamtaka á sviði umhverfismála þann 18. maí sl. vill ráðuneytið taka fram að framlög ráðuneytisins til frjálsra félagasamtaka á umhverfissviði hafa stóraukist að undaförnu. Árin 2000 og 2001 veitti ráðuneytið 2 milljónum króna á ári til umhverfisverndarsamtaka en síðustu 2 ár þ.e. 2002 og 2003 hefur ráðuneytið haft 8 milljónir króna til ráðstöfunar á ári til þess að styrkja verkefni og rekstur frjálsra umhverfisverndarsamtaka.

Frá árinu 2001 hafa heildarframlög til Náttúruverndarsamtaka Íslands nærri fjórfaldast (500.000 - 1.800.000 kr.) og heildarframlög til Landverndar tæplega áttfaldast (500.000 - 3.950.000 kr.) Ráðuneytið bendir á ekki getur talist eðlilegt að stuðningur hins opinbera standi undir öllum rekstri frjálsra umhverfisverndarsamtaka, enda segir í samstarfsyfirlýsingu ráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka að eigin fjáröflun skuli standa undir meginhluta almennrar starfsemi þeirra.

Fjárhagsstuðningur við frjáls félagasamtök er liður í viðamiklu samstarfi umhverfisráðuneytisins og félagasamtaka. Samstarfið byggir á samstarfsyfirlýsingu sem var undirrituð 20. mars 2001 en markmið samstarfsins er að efla almenna umræðu um umhverfisvernd og stuðla að aukinni þátttöku almennings í umhverfisvernd. Alls eiga 13 félagasamtök aðild að samstarfsyfirlýsingunni. Auk fjárhagslegs stuðnings felst samstarfið í reglulegum samráðsfundum þar sem fulltrúum félagasamtakanna eru kynnt helstu mál sem unnið er að innan ráðuneytisins og þeim gefinn kostur á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og að kynna verkefni á sínum vegum.

Meðfylgjandi fylgir til fróðleiks yfirlit yfir fjárframlög umhverfisráðuneytisins til frjálsra félagasamtaka á umhverfissviði árin 2000 til 2003 og samstarfsyfirlýsing ráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka frá 20. mars 2001.

Ráðuneytinu þykir það miður ef einstök umhverfisverndarsamtök eiga við fjárhagserfiðleika að etja. En að framangreindu má þó ljóst vera að óréttmætt er að draga umhverfisráðuneytið til ábyrgðar á þeim fjárhagsvanda sem þau kunna að hafa ratað í.

Fréttatilkynning nr. 17/2003
Umhverfisráðuneytið













Samstarfsyfirlýsing
umhverfisráðuneytisins og
frjálsra félagasamtaka


Markmið samstarfsaðila er að efla lýðræðislega umræðu um umhverfis- og náttúruvernd. Virkni og þátttaka almennings er forsenda árangurs í umhverfismálum. Hlutverk frjálsra félagasamtaka felst ekki síst í að koma upplýsingum til almennings. Því vill umhverfisráðuneytið auka samráð við frjáls félagasamtök um stefnumörkun og framkvæmd umhverfisverndar í samræmi við ákvæði Árósasamningsins frá 1998.

Skilgreiningar
  • Í samstarfsyfirlýsingu þessari er með frjálsum félagasamtökum átt við öll þau samtök sem láta umhverfisvernd til sín taka óháð því hvort umhverfisvernd sé megin viðfangsefni samtakanna.
  • Umhverfissamtök eru þau frjálsu félagasamtök sem hafa umhverfisvernd sem megin viðfangsefni og starfa á landsvísu eða eru svæðisbundin.

Forsendur
  • Aðilar að þessari samstarfsyfirlýsingu eru sammála um það að frjáls félagasamtök gegni mikilvægu lýðræðislegu hlutverki í umræðu um umhverfismál. Framlag þeirra við að upplýsa almenning, stjórnvöld og fjölmiðla er mikilvægur þáttur í sjálfbærri þróun íslensks samfélags.
  • Í yfirlýsingu sem umhverfisráðherrar aðildarríkja Efnahagsnefndar Sþ fyrir Evrópu (UN/ECE) samþykktu í Árósum í júní 1988 undirstrika þeir mikilvægi frjálsra félagasamtaka og hvetja stjórnvöld til að styðja við bakið á slíkum samtökum og til að virkja þau við ákvarðanatöku um umhverfismál.
  • Leitað verður heimildar Alþingis á árinu 2001 til staðfestingar á Árósasamningnum um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og réttláta málsmeðferð í umhverfismálum.
  • Löggjöf í umhverfismálum kallar á umtalsvert samráð við almenning.


Form samráðs umhverfisráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka
  • Umhverfisráðuneytið mun standa fyrir reglulegum samráðsfundum með umhverfissamtökum. Auk þess verður boðað til víðtækari samráðsfunda eftir því sem tilefni er til. Á þessum fundum mun ráðuneytið gera grein fyrir helstu málum sem unnið er að hverju sinni og umhverfissamtökin kynna sínar áherslur og verkefni.
  • Umhverfisráðuneytið mun annað hvert ár boða til Umhverfisþings þar sem fjallað verður um stefnumörkun og framkvæmd á sviði umhverfismála og sjálfbærrar þróunar.
  • Umhverfissamtök sem aðild eiga að samstarfsyfirlýsingu þessari geta óskað eftir samráðsfundum með umhverfisráðuneytinu þegar þau telja þörf á.
  • Umhverfisráðuneytið mun leitast við að bjóða fulltrúum frjálsra félagasamtaka þátttöku í fjölskipuðum nefndum á vegum ráðuneytisins og að hafa samráð við þau við undirbúning lagafrumvarpa og reglugerða.

Stuðningur við umhverfissamtök
  • Umhverfisráðuneytið mun veita árlega styrki í samræmi við heimildir fjárlaga hverju sinni til almennrar starfsemi umhverfissamtaka. Fjárframlög verða einungis veitt þeim félögum sem eru opin fyrir almennri aðild, starfa ekki í hagnaðarskyni, hafa opið og endurskoðað reikningshald og taka saman árskýrslur. Slíkir styrkir komi til viðbótar við eigin fjáröflun sem standa skal undir megin hluta starfseminnar.
  • Umhverfisráðuneytið mun auk þess veita fjármagni til faglegrar uppbyggingar umhverfissamtaka, og frjálsra félagasamtaka sem láta umhverfismál til sín taka, með því að styrkja tiltekin verkefni í samræmi við heimildir fjárlaga hverju sinni.
  • Umhverfisráðuneytið mun veita umhverfissamtökum fjárhagslegan stuðning til þátttöku í stefnumarkandi alþjóðlegum fundum um umhverfismál samkvæmt nánara samkomulagi.
  • Umhverfisráðuneytið mun setja nánari reglur um þennan stuðning í samráði við aðila að samstarfsyfirlýsingunni.

Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi
  • Umhverfissamtök eru hvött til þess að afla sér heimildar til þátttöku á fundum á vegum Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegra umhverfissamninga.

Aðild að samstarfsyfirlýsingunni
  • Umhverfisráðuneytið mun halda skrá yfir umhverfissamtök og önnur frjáls félagasamtök sem falla undir samstarfsyfirlýsingu þessa.
  • Öllum þeim samtökum sem falla undir samstarfsyfirlýsinguna er heimilt að óska eftir aðild að henni.

Endurskoðun

Þessi samstarfsyfirlýsing verður endurskoðuð í ljósi fenginnar reynslu að tveimur árum liðnum frá undirritun hennar af aðilum hennar sameiginlega.

Reykjavík, 20. mars 2001

Félag um verndun hálendis
Fuglaverndarfélag Íslands Austurlands
Hið íslenska náttúrufræðifélag
Landvernd
Náttúruverndarfélag Suðuvesturlands
Náttúruverndarsamtök Austurlands - NAUST
Náttúruverndarsamtök Íslands
Náttúruverndarsamtök Vesturlands
Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi - SUNN
Sól í Hvalfirði
Umhverfisverndarsamtök Íslands
og
Umhverfisráðherra

síðan hafa bæst við
Samtök útivistarfélaga - SAMÚT
Skógræktarfélag Íslands


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum