Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2004 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Fundur nefndar Sþ um sjálfbæra þróun í New York, dagana 28. – 30. apríl 2004

Siv og Magnús á CSD-fundi í NY
Siv og Magnús á CSD-fundi í NY

Umhverfisráðherra Siv Friðleifsdóttir tekur þátt í fundi nefndar Sþ um sjálfbæra þróun sem hófst í New York í dag 28. apríl og stendur til föstudagsins 30. apríl. Fundinn sækja rúmlega 80 ráðherrar og hafa aldrei fleiri ráðherrar sótt fundi nefndarinnar frá því hún var stofnuð árið 1993.

Á fundinum er rætt um framkvæmd samþykkta Jóhannesarborgar-ráðstefnunnar sem haldin var árið 2002, einkum þeirra er snúa að verndun ferskvatns, hreinlætismálum og byggða- og þéttbýlismyndun. Markmið Jóhannesarborgarfundarins voru m.a. að fækka um helming þeim sem búa við skort á öruggu drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu í heiminum.

Við upphaf fundarins í dag lagði Siv Friðleifsdóttir áherslu á framkvæmd alþjóðlegrar áætlunar um varnir gegn mengun sjávar frá landi, en með henni má bæði draga úr mengun hafsins, auka hreinlæti og vernda ferskvatn. Framkvæmd áætlunarinnar er því mikilvægt skref í að ná markmiðum Jóhannesarborgarfundarins.

Einnig lagði umhverfisráðherra áherslu á lykilhlutverk kvenna í þróunarríkjunum við að ná settum markmiðum, en konur sjá að verulegu leyti um öflun vatns til heimilishalds og hreinlæti í þróunarríkjunum. Því væri grundvallaratriði að bæta menntun kvenna og styrkja stöðu þeirra í samfélaginu og við alla ákvarðanatöku.

Ræða ráðherra í heild á ensku. Nánar...

Fréttatilkynning nr. 17/2004
Umhverfisráðuneytið



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum