Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2003 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Fulltrúi Íslands kjörinn forseti samningaferlis UNEP

Í gær hófust í Bankok í Tælandi samningaviðræður um markvissa alþjóðlega stefnu um meðhöndlun efna. Tilgangurinn er að vinna að því markmiði, sem sett var á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg árið 2002, að eigi síðar en árið 2020 verði efni notuð og framleidd þannig að ekki hljótist af umtalsverður skaði fyrir umhverfið eða heilsu manna. Þessar samningaviðræður eru á vegum Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNEP, en eru unnar í nánu samráði við sjö alþjóðlegar stofnanir þar á með Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og Alþjóða vinnumálastofnunina.

Við upphaf viðræðnanna var fulltrúi Íslands Halldór Þorgeirsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu, kjörinn forseti samningaferilsins. Í þessari kosningu felst viðurkenning á því forystuhlutverki sem Ísland hefur gengt í alþjóðlegri umræðu um þessi mál um langt árabil. Íslensk stjórnvöld hafa verið meðal forysturíkja í því að vinna gegn því á alþjóðavettvangi að hættuleg efni berist út í umhverfið enda eiga Íslendingar mikið undir vernd hafsins gegn mengun af manna völdum.

Fyrsta samningafundinn í Bankok sitja um fjögur hundruð fulltrúar 118 ríkja, 16 alþjóðlegra stofnana og 23 félagasamtaka. Að því er stefnt að niðurstaða úr samningaferlinu náist fyrir alþjóðlegan ráðherrafund um umhverfismál árið 2006.

Nánari upplýsingar eru á vef fundarins http://www.iisd.ca/chemical/saicm/

Fréttatilkynning nr. 36/2003
Umhverfisráðuneytið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum