Hoppa yfir valmynd
3. október 1998 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Reglugerð um akstur í óbyggðum

Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra hefur sett reglugerð um akstur í óbyggðum. Samkvæmt henni er allur akstur utan vega og merktra slóða þar sem náttúruspjöll geta af hlotist, bannaður. Með náttúruspjöllum er m.a. átt við spjöll á gróðri, jarðvegi og jarðmyndunum og myndun nýrra slóða, hvort sem er á grónu eða ógrónu landi og skiptir ekki máli hvort líkur eru á varanlegum skaða eða tímabundnum.

Nauðsynlegum akstri utan vega í óbyggðum skal jafnan hagað svo að engin náttúruspjöll eða lýti á landi hljótist af. Með nauðsynlegum akstri utan vega er m.a. átt við akstur vegna rannsókna eða björgunarstarfa. Við undirbúning ferðaáætlunar skal haft samráð við Náttúruvernd ríkisins sem getur sett skilyrði varðandi tækjabúnað og leiðaval. Tilkynna skal fyrirfram um akstur til viðkomandi sýslumanns eða lögreglustjóra, en nauðsynlegan fyrirvaralausan akstur utan vega skal tilkynna til viðkomandi sýslumanns við fyrsta tækifæri.

Náttúruvernd ríkisins getur í verndarskyni takmarkað umferð tímabundið eða lokað svæðum í óbyggðum, enda hafi stofnunin að jafnaði gert grein fyrir fyrirhugaðri lokun í skýrslu til umhverfisráðherra. Náttúruvernd ríkisins og vegamálastjóri gefa út kort, m.a. á vorin, með upplýsingum um ófærð á vegum og hvar óheimilt er að aka og á hvaða tímabili.

Brot gegn reglum þessum varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.

          Fréttatilkynning nr. 37/1998
          Umhverfisráðuneytið

        Hafa samband

        Ábending / fyrirspurn
        Ruslvörn
        Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum