Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2000 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ísland í öðru sæti í mati á stöðu umhverfismála skv. nýrri vísitölu.


Ný vísitala á stöðu umhverfismála og sjálfbærrar þróunar var kynnt á World Economic Forum fundinum í Davos í Sviss í þessari viku. Þar lendir Ísland í öðru sæti á lista yfir þau lönd sem standa best í umhverfismálum og auðlindanýtingu.

Vísitalan er nefnd "Environmental Sustainability Index" og byggist á 64 mælikvörðum sem taka til umhverfisástands, álags á umhverfið, áhrifa umhverfisþátta á þjóðfélagið, stjórnkerfi umhverfismála og þátttöku á alþjóðavettvangi. Vísitalan er unnin í samvinnu þriggja aðila, Yale- og Columbia-háskóla í Bandaríkjunum og samtakanna Global Leaders for Tomorrow. Nokkuð hefur verið fjallað um vísitöluna í erlendum fjölmiðlum, m.a. í vikublaðinu The Economist.

Vísitalan er á þróunarstigi og gagnasöfnun stendur enn yfir. Það vekur athygli að það er mikil samsvörun milli umhverfisvísitölunnar og vísitölu sem þróuð hefur verið til að mæla samkeppnishæfni þjóða. Þær þjóðir sem teljast hæfastar í samkeppni koma einnig best út í umhverfismálum. Þetta undirstrikar að skynsamleg umhverfisstefna, stöðugleiki og jákvæð efnahagsþróun fara vel saman.

Skv. vísitölunni lendir Noregur í fyrsta sæti og Sviss í því þriðja. Þar á eftir koma Finnland, Svíþjóð, Nýja Sjáland og Kanada. Danmörk lendir í 11. sæti, Holland í 13. sæti, Þýskaland í 15. sæti og Bandaríkin í því 16. Þróunarríkin koma almennt verr út úr þessum samanburði.

Fréttatilkynning nr. 4/2000
Umhverfisráðuneytið





 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum