Hoppa yfir valmynd
19. október 2015 Matvælaráðuneytið

Vandað, hagkvæmt, hratt - upphafsfundur um hagkvæmt húsnæði

Byggingaframkvæmdir
Byggingaframkvæmdir
Ráðherrar húsnæðismála, umhverfismála og iðnaðar hafa boðað til upphafsfundar verkefnis ríkisstjórnarinnar um hagkvæmt húsnæði. Verkefnið hefur fengið yfirskriftina „Vandað, hagkvæmt, hratt“ og til upphafsfundarins eru boðnir allir helstu hagsmunaaðilar sem málefnið snertir.  
Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 21. október kl. 8:30-11:00 en boðið er upp á morgunverð frá kl. 8:00. Fundarstjóri verður Þórhallur Gunnarsson.
Verkefnið „Vandað, hagkvæmt, hratt“ byggir á samþykkt ríkisstjórnarinnar um aðgerðir á sviði húsnæðismála, í tengslum við gerð kjarasamninga síðastliðið vor. Í ljósi þess hversu brýnt málefnið er þá var ákveðið að boða fundinn við fyrsta tækifæri þar sem ráðherrarnir þrír komast allir. Margir koma að efni fundarins en áhersla er lögð á að verkefnið fari strax af stað. Upphafsfundurinn er aðeins fyrsta skrefið.
Markmið fundarins er að stilla saman strengi allra þeirra sem þurfa að koma að verkefninu. Umræður verða á borðum í sal með þjóðfundarfyrirkomulagi og er vonast til að þær skili góðum hugmyndum að leiðum til að lækka byggingarkostnað.
Ráðherrar verða í pallborði og haldin verða stutt erindi um sögu hagkvæms húsnæðis og þarfir nýrrar kynslóðar.
Dagskrá
Að loknum morgunverði setur Þórhallur Gunnarsson fundarstjóri fundinn. Þá verður efnt til pallborðsumræða ráðherranna þriggja þeirra Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Sigrúnar Magnúsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra. Að pallborðsumræðum loknum fara fram umræður í sal með þjóðfundasniði. Að því búnu fer Pétur Ármannsson arkitekt yfir sögu hagkvæmra húsnæðislausna á Íslandi. Eftir stutt kaffihlé halda umræður áfram þar til kemur að stuttu innleggi Unu Sighvatsdóttur blaðamanns sem fjallar um þarfir og væntingar nýrra kynslóða til húsnæðis. Loks segja ráðherrarnir hver um sig nokkur orð út frá efni og umræðum fundarins.
Nauðsynlegt er tilkynna þátttöku fyrirfram.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum