Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ármann Höskuldsson formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs

Ármann Höskuldsson

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað dr. Ármann Höskuldsson formann stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs.

Ármann er eldfjallafræðingur og vísindamaður við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands frá árinu 2004. Áður starfaði hann sem forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum. 

Ármann er með doktorsgráðu í eldfjallafræði, bergfræði og jarðefnafræði frá Blaise Pascal háskólanum í Frakklandi. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í gegn um tíðina og m.a. verið formaður hjálparsveitar Skáta í Garðabæ, forseti Jarðfræðafélags Íslands, setið í Háskólaráði og stjórn Jarðvísindastofnunar og -deildar Háskólans sem og verið ræðismaður Frakklands í Vestmannaeyjum.

Hjalti Þór Vignisson, fyrrverandi formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs, lætur af störfum að eigin ósk. Hann hefur verið formaður stjórnarinnar frá því í október 2013. Er honum þökkuð afar góð störf í þágu þjóðgarðsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum