Hoppa yfir valmynd
19. desember 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Veiðikortasjóði

Hreindýr.
Hreindýr.

Umhverfis- og auðlindaráðherra úthlutar fé til vöktunar og rannsókna af tekjum vegna sölu veiðikorta í samræmi við lög nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til vöktunar og rannsókna á stofnum villtra dýra sem heimilt er að veiða. Skriflegar umsóknir skulu berast ráðuneytinu, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík og með tölvupósti á [email protected], merktar Veiðikortasjóður 2015, fyrir mánudaginn 19. janúar 2015.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að skila inn umsókn á sérstöku umsóknareyðublaði sem finna má á hér að neðan.

Í umsókn um styrk úr Veiðikortasjóði skal umsækjandi greina frá efni og afmörkun fyrirhugaðra rannsókna, hverjir koma að rannsóknunum, skipulagi þeirra og áætluðum tímamörkum ásamt upplýsingum um menntun og/eða fyrri rannsóknir. Skilyrði er að umsækjendur, sem áður hafa hlotið styrk úr sjóðnum hafi skilað skýrslu um viðkomandi rannsóknir, til að geta hlotið styrk á ný.

Til úthlutunar eru tekjur af sölu veiðikorta 2014.

Konur jafnt sem karlar eru hvött til að senda inn umsóknir. Ráðuneytið stefnir að því að úthluta styrkjum svo fljótt sem auðið er, að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og ráðgjafanefndar.

Umhverfis- og auðlindaráðherra vinnur að endurskoðun fyrirkomulags úthlutunar veiðikortasjóðs í samráði við þá sem lög um villt dýr gera ráð fyrir og fagstofnanir ráðuneytisins.  

Eyðublað fyrir umsóknir um styrki úr Veiðikortasjóði.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum