Hoppa yfir valmynd
23. október 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Frumathugun á samlegð Landmælinga Íslands og Þjóðskrár Íslands

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson og innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir hafa samþykkt tillögu forstjóra Landmælinga Íslands og Þjóðskrár Íslands um að gerð verði frumathugun  á samlegð í starfsemi þessara stofnana.  

Frumathugunin verður unnin í nánu samstarfi Landmælinga Íslands og Þjóðskrár Íslands og í samráði við þau ráðuneyti  sem þessar stofnanir heyra undir.

 Eftirfarandi þættir verða hafðir til grundvallar við athugunina:

  • Greina núverandi starfsumhverfi stofnananna og meta hvernig ytri aðstæður geti haft áhrif á starfsemina á næstu árum.
  • Greina innviði stofnananna til að meta hve vel þær eru búnar undir samþættingu eða sameiningu.
  • Lýsa framtíðarsýn og skilgreina markmið með samþættingu eða sameiningu.
  • Gera tillögur um valkosti.

Verkefnið er í anda stefnu núverandi ríkisstjórnar um að bæta og einfalda stjórnsýslu og þjónustu hins opinbera.

Starfshópur sem skipaður hefur verið af innanríkisráðherra mun samhliða þessu verkefni vinna að stefnumótun og skipulagi í málaflokkum Þjóðskrár Íslands og Útlendingastofnunar, sjá frétt innanríkisráðuneytisins.

Tillögur á grundvelli athugunar Landmælinga Íslands og Þjóðskrár Íslands verða settar fram í greinargerð til umhverfis- og auðlindaráðherra annars vegar og innanríkisráðherra hins vegar fyrir 1. febrúar 2015.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum