Hoppa yfir valmynd
29. september 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Starfshópur mótar tillögur til að draga úr matarsóun

Verkefnin eiga að sporna gegn matarsóun.

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað starfshóp sem móta skal tillögur um hvernig draga megi úr sóun matvæla. Hópnum er ætlað að benda á hvetjandi leiðir til að nýta hráefni betur við vinnslu matvara sem og fullunnar matvörur eftir að þær eru komnar til neytenda, veitingastaða, framleiðenda og söluaðila. 

Þá skal hópurinn leggja fram tillögur um hvernig auka megi fræðslu um matarsóun, m.a. áhrif umbúða og skammtastærða. Loks skal hópurinn meta hvaða stjórntæki geta gagnast við að draga úr matarsóun og hvort þörf sé á breytingum á lögum og reglum sem áhrif geta haft á sóun matvæla. 

Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) áætlar að þriðjungur matvælaframleiðslu, eða um 1,3 milljarðar tonna matvæla fari árlega til spillis.  Á sama tíma fara milljónir fólks svangar að sofa á hverjum degi og tugþúsundir barna deyja daglega úr næringarskorti. Þetta ójafnvægi í lífsstíl fólks hefur stórfelld áhrif á heilsu og umhverfið, m.a. vegna aukinnar losunar gróðurhúsalofttegunda, land- og vatnsnotkunar og ýmissar mengunar sem hlýst af matarframleiðslu. 

Á Degi umhverfisins í ár, 25. apríl, stóð umhverfis- og auðlindaráðuneytið fyrir málþingi um matarsóun undir yfirskriftinni „Hættum að henda mat“. Á málþinginu var fjallað um umfang, ástæður og afleiðingar matarsóunar, hvað stýrir neytendum þegar kemur að kaupum á mat, hvernig nýta megi betur hráefni við matvælaframleiðslu, hvernig draga megi úr matarsóun í mötuneytum og þá vitundarvakningu sem hefur orðið hjá almenningi og stjórnvöldum á þessu sviði. 

Með skipun starfshópsins nú er málþinginu fylgt eftir en í honum sitja fulltrúar  Umhverfisstofnunar, Matvælastofnunar, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustunnar, Bændasamtaka Íslands, Kvenfélagssambands Íslands og Landverndar en hópurinn er undir forystu ráðuneytisins. Gert er ráð fyrir að hann skili tillögum sínum fyrir miðjan apríl 2015 og að þær verði kynntar á Degi umhverfisins á næsta ári.

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur einnig ákveðið að í almennri stefnu um úrgangsforvarnir sem hann mun gefa út um næstu áramót verði höfðuáhersla lögð á að draga úr og koma í veg fyrir sóun matvæla.

Í formennskuáætlun Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni 2014, „Gróska – lífskraftur“,  er lögð áhersla á norræna lífhagkerfið þar sem eitt markmiðanna er að draga úr sóun og hámarka nýtingu og ábata af lífrænum afurðum. Þá styrkir Norræna ráðherranefndin í ár „Zero Waste“ verkefni Landverndar, Kvenfélagasambands Íslands og Vakandi sem hefur það markmið að vinna gegn sóun á mat á öllum stigum framleiðslunnar og neyslu. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum