Hoppa yfir valmynd
23. september 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Breytingar á lögum um mat á umhverfisáhrifum

Skarðsheiði.

Umhverfis- og samgönguráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, mælti í dag fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um mat á umhverfisáhrifum. Frumvarpið er til komið vegna skuldbindinga Íslands vegna EES samningsins. Í því er m.a. lögð til breyting á viðmiðunarmörkum framkvæmda sem leiðir af sér að fleiri framkvæmdir falla undir lögin en verið hefur. Lagt er til að málsmeðferð þeirra verði einfaldari og styttri en núgildandi lög kveða á um.

Gert er ráð fyrir að sveitarfélögin taki ákvarðanir um matsskyldu þeirra nýju framkvæmda sem falla undir lögin og eru háðar leyfum sveitarfélaga. Er Skipulagsstofnun falið leiðbeininga- og eftirlitshlutverk með stjórnsýslu sveitarfélaganna vegna þessara framkvæmda.

Með frumvarpinu eru viðaukar laganna sem tilgreina framkvæmdir sem falla undir lögin gerðir skýrari og mælieiningum og stærðarmörkum tiltekinna framkvæmda breytt. Einnig er almenningi og stjórnvöldum gefin aukin tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmda, sem ná yfir landamæri.

Með frumvarpinu verður undirbúningur framkvæmda vandaðri af hálfu stjórnvalda og framkvæmdaraðila og mun einnig leiða til aukinnar yfirsýnar þar sem gert er ráð fyrir að þær framkvæmdir og leyfi til framkvæmda sem falla undir lögin verði tilkynnt Skipulagsstofnun.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum