Hoppa yfir valmynd
14. mars 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir umsögnum um skýrslu um stöðu innleiðingar Árósasamningsins

Merki Árósasamningsins

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að fyrstu skýrslu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um stöðu innleiðingar Árósasamningsins hér á landi. Um er að ræða fyrstu skýrslu Íslands til samningsins en aðildarríkjum hans ber að skila slíkum skýrslum til skrifstofu samningsins á þriggja ára fresti.

Ísland fullgilti í október 2011 Árósasamninginn um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Þar með varð Ísland fullgildur aðili að samningnum og því starfi sem tengist honum. Auk aðildarríkjaráðstefnu á 3ja ára fresti og ríkjafunda sem haldnir eru árlega eru á vettvangi samningsins reknir vinnuhópar um helstu málefni samningsins, þ.e. aðgang að upplýsingum, þátttökuréttindi almennings og aðgang að réttlátri málsmeðferð. Þá er rekin sérstök nefnd um framfylgni (Compliance Committee) sem fylgist með framkvæmd samningsins í aðildarríkjum hans.

Aðildarríkjum ber að skila aðildarríkjaskýrslu til skrifstofu samningsins á þriggja ára fresti þar sem farið er yfir stöðu innleiðingar ákvæða samningsins í viðkomandi ríki. Síðast skiluðu aðildarríkin skýrslu af þessu tagi árið 2011, áður en Árósasamningurinn var fullgiltur hér á landi og er því komið að fyrstu skýrsluskilum Íslands. Skýrslurnar verða svo til umræðu á aðildarríkjaráðstefnu samningsins næstkomandi sumar.

Þar sem Árósasamningurinn fjallar um þátttökuréttindi almennings er eðli málsins samkvæmt áhersla lögð á að stjórnvöld hafi samráð við almenning og samtök hans við gerð skýrslunnar. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar því eftir umsögnum og athugasemdum við skýrsludrögin. Frestur til að skila umsögnum rennur út 28. mars næstkomandi og er hægt að senda þær á netfangið [email protected] eða í bréfapósti til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Glóey Finnsdóttir,  [email protected].

Drög að skýrslu um stöðu innleiðingar Árósasamningsins 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum