Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Lýsing Landsskipulagsstefnu 2015-2026

Mosfellsdalur

Skipulagsstofnun hefur auglýst lýsingu fyrir gerð landsskipulagsstefnu 2015-2026. Í lýsingunni er gerð grein fyrir því hvernig fyrirhugað er að standa að mótun landsskipulagsstefnu.

Lýsingin verður jafnframt kynnt á kynningar– og samráðsfundum á eftirtöldum stöðum en nánari dagskrá verður auglýst síðar:

  • Reykjavík 25. febrúar kl. 15.00 - 17.30, Iðnó, Vonarstræti 3
  • Borgarnesi 27. febrúar kl. 14.00 -16.00, Bjarnarbraut 8
  • Selfossi 28. febrúar kl. 15.00 - 17.00, Hótel Selfossi, Kirkjuvegi 2
  • Egilsstöðum 3. mars kl. 15.00 - 17.00, Hótel Héraði, Miðvangi 1-7
  • Ísafirði 4. mars kl. 15.00 - 17.00, Háskólasetri Vestfjarða, Suðurg. 12
  • Akureyri 5. mars kl. 15.00 - 17.00, Hótel KEA, Hafnarstræti 87-89

Allir sem þess óska geta komið á framfæri ábendingum og athugasemdum við lýsinguna og skulu þær berast Skipulagsstofnun í síðasta lagi 12. mars 2014 á [email protected], með bréfi á heimilisfang Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík eða á www.landsskipulag.is

Lýsing landsskipulagsstefnu 2015 – 2026 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum