Hoppa yfir valmynd
28. nóvember 2013 Matvælaráðuneytið

Aðgerðir hafnar í Kolgrafafirði

Kolgrafafjörður V 291113
Kolgrafafjörður V 291113

Upp úr kl.15:00 í dag hófust tilraunir með að nota svokallað „Thunderflash“ til að fæla síld úr Kolgrafafirði.  Thunderflash eru litlar hvellhettur  eða smásprengjur sem Landhelgisgæslan notar ef hún þarf til dæmis að kalla kafara upp úr sjónum.  Hvellhetturnar framkalla hávaða og titring neðansjávar og mun líklega engin verða var við neitt á yfirborðinu. 

Fyrstu upplýsingar frá vettvangi gefa til kynna að þessi aðferð sé að skila árangri.

Aðgerðirnar voru kynntar og ræddar á fundi sem haldinn var með heimamönnum að bænum Eiði í Kolgrafafirði í gær.  

Smölun síldar með Thunderflash er aðferð sem var á einum tíma notuð við nótaveiðar en er í dag bönnuð.  Nokkrar vonir eru bundnar við að þessi aðferð virki við að koma síldinni á hreyfingu og út úr firðinum en hún er gerð að frumkvæði Hafrannsóknarstofnunar.

Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar sér um framkvæmd þessarar tilraunar í náinni samvinnu við Hafrannsóknarstofnun.  Bátar á vegum Landhelgisgæslunnar hafa í dag verið að koma hvellhettum fyrir í firðinum og vegna þess hefur honum verið lokað.  Landhelgisgæslan hefur notið aðstoðar léttabáta frá síldveiðiskipum sem stödd eru á svæðinu.

Gamli vegurinn inn fjörðinn verður lokaður á meðan á þessu stendur en umferð um þjóðveginn verður opin en búast má við umferð viðbragðsaðila á svæðinu og takmörkuðum umferðarhraða.

Hafrannsóknarstofnun mun fylgjast grannt með árangri aðgerðarinnar sem felst meðal annars í því að fylgjast með hreyfingu síldarinnar og súrefnisstöðu fjarðarins.

Samhæfing aðgerða á sjó er í höndum Landhelgisgæslunnar en vettvangsstjórn er einnig að störfum á svæðinu skipuð fólki frá lögreglustjóranum á Snæfellsnesi, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunni og Hafrannsóknarstofnun.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum