Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umsóknir um styrki á sviði umhverfis- og auðlindamála

Alþingi
Alþingi.

Umsóknarfrestur um styrki til verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála og reksturs félagasamtaka á sama sviði er til kl. 16:00, miðvikudaginn 4.desember 2013. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, ásamt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti, úthlutar styrkjum til félaga, samtaka og einstaklinga af safnliðum ráðuneyta sem ákvarðaðir eru af Alþingi í fjárlagagerð. Fer ákvörðun um framlag til einstakra málaflokka því eftir samþykki Alþingis í fjárlögum 2014.

Styrkjum er einungis úthlutað til verkefna sem falla undir málefnasvið ráðuneytanna að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir. Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja ráðuneyti sér rétt til að færa umsóknir á milli ráðuneyta falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitir styrki til að styðja við verkefni á vegum aðila utan ríkisstofnana sem starfa á verkefnasviði ráðuneytisins.

Minnt er á að hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi vegna fyrri styrkveitinga.

Upplýsingar um mat á umsóknum er að finna í 4. gr. úthlutunarreglna.

Auk þessara styrkja veitir umhverfis- og auðlindaráðuneytið rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa á málefnasviði ráðuneytisins. Markmið styrkjanna er að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfis- og auðlindamál og að efla almenna vitund um gildi umhverfis- og náttúruverndar.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins.

  • Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjenda auk þess sem hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá Þjóðskrá.
  • Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja umhverfis- og auðlindaráðuneyti undir flipanum Eyðublöð.
  • Úthlutað er einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar ár hvert.
  • Reglur um úthlutun.
  • Vinnulag umhverfis- og auðlindaráðuneytis við úthlutun styrkja.

 Nánari upplýsingar veitir Birna Kolbrún Gísladóttir í síma 545 8600 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum