Hoppa yfir valmynd
16. október 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Málþing og greinargerð um myrkurgæði

Frá Þingvöllum

Starfshópur um myrkurgæði á Íslandi hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra greinargerð sinni þar sem settar eru fram þrettán tillögur um að varðveita myrkurgæði og sporna við ljósmengun á Íslandi, bæði í þéttbýli og dreifbýli.

Hópurinn bendir á að myrkurgæðum hafi hrakað verulega á Íslandi undanfarna áratugi, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, og telur að ljósmengun sé meiri hérlendis en á sambærilegum svæðum í grannlöndunum. Í greinargerðinni segir að myrkurgæði séu hluti af lífsgæðum almennings og einnig er bent á gagn sem ferðaþjónusta hefur af myrkurgæðum, svo sem í norðurljósaferðum og ýmissi annarri vetrarferðamennsku. Þá tengjast myrkurgæði og orkusparnaður í bókhaldi fjölskyldna, sveitarfélaga og ríkis. 

Greinargerðin skiptist í 20 kafla og er í þeim fjallað um ýmsa þætti myrkurgæða og ljósmengunar heima og erlendis. Meðal annars er fjallað um þróun myrkurgæða á Íslandi síðustu áratugi, um mælingu myrkurgæða og sagt frá slíkri mælingu á höfuðborgarsvæðinu, fjallað um myrkurgæði af sjónarhóli stjörnuáhugamanna, sveitarstjórna og ferðaþjónustu, kannaðar heimildir um áhrif ljósmengunar á heilsu manna og atferli dýra, sagt frá ljósvist í skipulagi, fjallað um myrkurgarða og önnur myrkursvæði og leiðbeint um flóðlýsingu með myndum af höfuðborgarsvæðinu.

Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði starfshópinn í mars 2012 og voru í honum þau Mörður Árnason, formaður, Andrés Ingi Jónsson, Inga Sigrún Atladóttir, Íris Bjargmundardóttir og Snævarr Guðmundsson. Hermann Sveinbjörnsson, sérfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, starfaði með hópnum.

Greinargerðin er gefin út rafrænt og má skoða hana eða sækja hér.

Málþing um myrkurgæði

Í tilefni af útgáfu greinargerðarinnar um Myrkurgæði á Íslandi verður haldið málþing um myrkurgæði og ljósmengun miðvikudaginn 23. október, kl. 1012, í fundarsal Þjóðminjasafnsins.

Mörður Árnason formaður starfshópsins kynnir greinargerð hans um myrkurgæði og ljósmengun. Síðan verða flutt stutt erindi:

  • Áhugamenn horfa til himins. Sverrir Guðmundsson, framhaldsskólakennari og stjórnarmaður í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness.
  • Hvað sjást margar stjörnur? – Myrkurgæði á höfuðborgarsvæðinu.  Snævarr Guðmundsson landfræðingur.
  • Hlutverk OR við götulýsingu. Hilmar Jónsson starfsmaður Orkuveitu Reykjavíkur.
  • Ljósvistarskipulag –  markmið og ávinningur. Guðjón L. Sigurðsson lýsingarhönnuður og Rósa Dögg Þorsteinsdóttir lýsingarhönnuður og innanhússarkitekt.

Að loknum erindum verða pallborðsumræður og eru þátttakendur þar auk framsögumanna þau Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum og formaður Ferðafélags Íslands, og Svandís Svavarsdóttir, alþingismaður og fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum