Hoppa yfir valmynd
27. mars 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ný verkefnisstjórn rammaáætlunar skipuð

Vatnsorka.
Foss.


Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur skipað verkefnastjórn rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða. Verkefnisstjórn er skipuð til fjögurra ára í senn og skal að fengnum niðurstöðum faghópa, samráði við haghafa og umsagnar almennings vinna drög að rökstuddum tillögum til ráðherra um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða. Rammaáætlun er meðal þeirra verkefna sem fluttust til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins við breytingar á Stjórnarráðinu 1. september 2012.

Sem kunnugt er var rammaáætlun um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða samþykkt á Alþingi í janúar sl. en hún byggði á viðamiklu starfi fyrri verkefnisstjórnar og faghópa. Samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun sem Alþingi samþykkti 2011 skal ráðherra skipa verkefnisstjórn til fjögurra ára í senn sem er honum til ráðgjafar við undirbúning að gerð tillagna fyrir rammaáætlun. Er markmið laganna að tryggja að nýting landsvæða þar sem möguleikar eru á orkuvinnslu byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Verkefnisstjórn skal fjalla um virkjunarhugmyndir og landsvæði í biðflokki rammaáætlunar og svæði sem ekki hafa verið áður til umfjöllunar, en getur einnig endurmetið virkjunarhugmyndir og landsvæði gildandi áætlunar. Á vegum verkefnisstjórnar starfa faghópar með sérfræðingum á viðeigandi sviðum sem fara yfir þessi svæði en niðurstöður faghópanna verða til grundvallar tillagna verkefnisstjórnar til ráðherra um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða.

Verkefnisstjórn er ætlað að líta sérstaklega til ábendinga sem komu fram við vinnu fyrri áfanga rammaáætlunar, sem voru teknar saman í áliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar við afgreiðslu fyrstu rammaáætlunarinnar. Sérstaklega skal skoða nýtingu jarðhita m.t.t. sjálfbærni orkuvinnslunnar, áhrif nýtingar á grunnvatn, mengun lofts af völdum brennisteinsvetnis og annarra lofttegunda, hugsanleg áhrif á lýðheilsu og jarðskjálftavirkni í tengslum við niðurdælingu og nýtingarhlutfall jarðvarma til raforkuframleiðslu. Þá er verkefnisstjórn ætlað að afla gagna og meta hagsmuni annars konar nýtingar en til orkuframleiðslu.

Lögð er sérstök áhersla á að verkefnisstjórnin starfi með þeim hætti að tryggt sé að almenningur hafi virka aðkomu og félagasamtök taki þátt í öllu starfi í tengslum við rammaáætlun.

Verkefnisstjórn er ætlað að skila tillögum sínum til ráðherra innan fjögurra ára. Hún er skipuð sex fulltrúum og jafnmörgum til vara:

Skipuð án tilnefningar:
• Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur, formaður,
• Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, skipulagsfræðingur, varamaður formanns,
• Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor,
• Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, til vara,

Tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti:
• Helga Barðadóttir, sérfræðingur, aðalfulltrúi,
• Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, til vara,
• Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður, aðalfulltrúi,
• Sigrún Helgadóttir, líffræðingur, til vara.

Tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti:
• Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, sérfræðingur, aðalfulltrúi,
• Eiríkur Þorláksson, sérfræðingur, til vara.

Tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga:
• Elín R. Líndal, sveitarstjórnarfulltrúi, aðalfulltrúi,
• Guðjón Bragason, sviðsstjóri, til vara.

Starfsmaður verkefnisstjórnarinnar er Herdís Helga Schopka, sérfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneyti.


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum