Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskaðeftir verkefnum frá varðliðum umhverfisins

Skolar-heilsast
Frá hátíðarathöfn á Degi umhverfisins 2012.

Boðað er til árlegrar verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Keppnin kallast Varðliðar umhverfisins og það eru umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur sem standa að henni. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

Skilafrestur verkefna er til 22. mars 2013 og þau skal senda umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur úr innsendum verkefnum og tilnefnir Varðliða umhverfisins.

Þetta er í sjöunda sinn sem efnt er til keppninnar. Verkefnin mega vera af fjölbreyttum toga, t.d. ritgerðir, ljósmyndir, ljóð, veggspjöld, bæklingar, myndbönd og hljóðverk. Í stuttu máli er frjálst að skila inn verkefnum í hvaða formi sem er svo lengi sem þau eru sannarlega unnin af nemendunum sjálfum og umfjöllunarefni þeirra eru umhverfismál í víðum skilningi þess orðs.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, útnefnir Varðliða umhverfisins við hátíðlega athöfn í tengslum við Dag umhverfisins, 25. apríl en auk þess fá varðliðarnir glaðning í formi upplifunar af einhverju tagi í samráði við skóla þeirra. Allir þátttakendur í verkefninu fá viðurkenningarskjal.

Í fyrra voru nemendur tveggja skóla útnefndir Varðliðar umhverfisins; nemendur í 7. og 8. bekk Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði fyrir vinnu sína að umhverfisþingi skólans og nemendur Foldaskóla í Grafarvogi fyrir þátttöku sína í Norræna loftslagsdeginum. Auk verðlaunaskjals fengu nemendur skólanna tveggja heimsóknir frá Sprengjugengi Háskóla Íslands og Sprengjugengi Menntaskólans á Akureyri.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um keppnina hér á heimasíðu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum