Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tengsl heilsu og loftslags kortlögð

Loftslagsbreytingar hafa áhrif um allan heim.
Loftslagsbreytingar hafa áhrif um allan heim.

Hættur sem steðja að heilsu manna aukast eftir því sem loftslagsbreytingar verða meiri. Þetta er meðal þess sem kemur fram  í ritinu „The Atlas of Health and Climate“ sem Alþjóða veðurmálastofnunin (WMO) og Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) hafa gefið út. Þar eru áhrif loftslagsbreytinga á heilsu fólks víðs vegar um heim kortlögð og sjónum beint að brýnustu viðfangsefnunum á þessu sviði.

Þurrkar, flóð og hvirfilbylir hafa á hverju ári áhrif á milljónir manna. Óstöðugt og öfgakennt veðurfar getur einnig komið af stað sjúkdómafaröldrum á borð við niðurgang, malaríu, beinbrunasótt og heilahimnabólgu en slíkir sjúkdómar geta valdið dauða og þjáningum milljóna manna. Í ritinu er að finna góð dæmi um hvernig nota megi veður- og loftslagsupplýsingar til að vernda heilsu almennings.

Fjöldi korta, tafla og grafa sem er að finna í Atlasinum skýra vel hvernig tengslum milli loftslags og heilsu er háttað:

  • Á sumum stöðum sveiflast tíðni smitsjúkdóma um meira en 100 stig milli árstíða og verulega milli ára, eftir veðri og loftslagi. Styrkari veður- og loftslagsþjónusta á viðkvæmum svæðum gæti auðveldað spár um hvenær og hvar sjúkdómar eru líklegir til að kvikna, um styrk þeirra og hversu lengi þeir verða að ganga yfir. 
  • Rannsóknir sýna hvernig samvinna milli veðurstofa, neyðarþjónustu og heilbrigðiskerfis bjargar mannslífum. Sem dæmi þá fækkaði dauðsföllum af völdum hvirfilbylja af svipuðum styrkleika í Bangladesh úr 500 þúsund árið 1970 í 140 þúsund  árið 1991 og niður í 3 þúsund árið 2007. Þetta er þakkað betra viðvörunarkerfi og því að menn eru betur undirbúnir undir hvirfilbylina en áður.
  • Miklar hitabylgjur sem í dag er ekki búist við nema á 20 ára fresti gætu orðið mun algengari um miðja öldina, eða gengið yfir annað til fimmta hvert ár. Á sama tíma mun fjölga verulega í þeim hópi sem er hvað viðkvæmastur fyrir hita, þ.e. eldra fólki sem býr í borgum. Búist er við að hópurinn muni fjórfaldast á heimsvísu á tímabilinu og fara úr 380 milljónum árið 2010 í 1,4 milljarða árið 2050. Mælt er með því að auka samstarf milli heilbrigðis- og loftslagsþjónustu svo hægt sé að grípa til aðgerða til verndar fólki vegna öfga í veðri.
  • Ef heimili skiptu yfir í endurnýjanlega orkugjafa drægi ekki einungis úr loftslagsbreytingum heldur myndi það bjarga lífum um 680 þúsund barna árlega vegna bættra loftgæða. Í Atlasinum er sýnt hvernig veður- og heilbrigðistþjónusta getur haft samstarf um að fylgjast með loftgæðum og áhrifum loftmengunar á heilsu fólks.
  • Þá sýnir Atlasinn hvernig aðrir þættir, s.s. fátækt, hnignun lífríkis og náttúru, skortur á vatni og léleg salernisaðstaða, hafa áhrif á sambandið milli heilsu og loftslags.

Frétt WMO og WHO um Atlasinn

The Atlas of Health and Climate

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum