Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Nauthóll fær Svansvottun

Nauthóll fær norræna Svaninn.
Nauthóll fær norræna Svaninn.

Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra afhenti veitingastaðnum Nauthól Svansmerkið á þriðjudag. Nauthóll er þar með fyrsta veitingahús landsins sem uppfyllir skilyrði norræna umhverfismerkisins, en áður hafa kaffihús Kaffitárs hlotið vottun.

Svansvottunin tekur m.a. til orkunotkunar, flokkunar rusls, gæða umhverfis og heilnæmi hráefnis. Starfsfólk Nauthóls hefur nú lært að flokka úrgang á fjóra vegu, nota sérstök Svansvottuð hreinsiefni, gæta að uppruna hráefnis og fylgjast með orkunotkun. Einnig má nefna að öskubakkar á sólpalli Nauthóls hafa verið fjarlægðir en reykingar eru ekki heimilar á útisvæðum Svansvottaðra veitingahúsa, sem tryggja eiga heilnæmt umhverfi fyrir alla gesti.

Áður hafa 21 aðrir framleiðslu- og þjónustuaðilar á Íslandi fengið Svansmerkið en mikil aukning hefur verið í vottunum undanfarin ár. Til samanburðar voru aðeins fjögur fyrirtæki með Svansvottun árið 2008.  Svanurinn vottar að varan eða þjónustan standist kröfur óháðra sérfræðinga og sé því ákjósanlegri fyrir umhverfi og heilsu en sambærilegar vörur og þjónusta sem eru á markaði.

þess má geta að á morgun hlýtur Prentmet á Akranesi Svansvottun og verða íslensk fyrirtæki með Svansvottun þá orðin 23 talsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum