Hoppa yfir valmynd
7. maí 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Málþing um raflínur og strengi

Raftenglar.
Raftenglar.

Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra hafa skipað nefnd er móta skal stefnu um lagningu raflína í jörð í samræmi við þingsályktun Alþingis í þskj. 748 frá 1. febrúar 2012.  Á undanförnum árum hefur orkuframleiðsla á Íslandi aukist mjög og jafnframt gagnrýni á neikvæð umhverfisáhrif hennar.  Einn þáttur þeirra áhrifa er sjónmengun af völdum háspennulína og hefur sú krafa orðið háværari að jarðstrengir séu nýttir í stað loftlína. Mikilvægt er að fyrir liggi stefnumörkun um með hvaða hætti og á hvaða forsendum skuli stefnt að lagningu raflína í jörð og til hvaða þátta skuli sérstaklega taka tillit í þeim efnum. Nefndin boðar til opins málfundar um málefnið þann 11. maí næstkomandi.

Fundurinn fer fram í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands 11. maí næstkomandi og stendur frá kl. 13.00-15.15.

Dagskrá

  • 13.00-13.05 Setning. Þingsályktun. Nefnd um stefnumörkun.
  • 13.05-13.25 Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets:  Jarðstrengir – flutningsgjaldskrá og umhverfi.
  • 13.25-13.45 Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar:  Mikilvægi umhverfisþátta í stefnumörkun um jarðstrengi.
  • 13.45-14.05 Daði Már Kristófersson, dósent við Háskóla Íslands: Mat á umhverfiskostnaði raflínulagna.
  • 14.05-14.15 Hlé
  • 14.15-14.35 Stefán Thors, forstjóri Skipulagstofnunar, Raflínur, skipulag, mat á umhverfisáhrifum
  • 14.35-15.15 Umræður

Fundarstjóri: Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands

Aðgangur er ókeypis.  Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum