Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kynbundin áhrif loftslagsbreytinga rædd á morgunverðarfundi

Umhverfisráðherra ásamt úgandísku sérfræðingunum.
Umhverfisráðherra ásamt úgandísku sérfræðingunum.

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, ávarpaði morgunverðarfund um kynbundin áhrif loftslagsbreytinga, sem haldinn var á Hóteli Sögu í morgun. Fundurinn var á vegum Alþjóðlegs jafnréttisskóla við Háskóla Íslands (GEST Programme) sem stendur að námskeiðum í Úganda síðar á árinu í því skyni að auka þekkingu og færni fólks til að vinna að verkefnum á sviði jafnréttis og loftslagsbreytinga. 

Námskeiðið er liður í samstarfi stjórnvalda Úganda annars vegar og Íslands, Noregs og Danmerkur hins vegar um að samþætta jafnréttissjónarmið í aðgerðum landsins til að takast á við loftslagsbreytingar. Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur haft veg og vanda að undirbúningi verkefnisins í Úganda og samskiptum við samstarfsaðila.  Námskeiðin verða skipulögð fyrir sérfræðinga úr ýmsum geirum í landinu, s.s. ráðuneytum, stofnunum, félagasamtökum og héraðsstjórnum. Gerð námsefnis og framkvæmd námskeiðanna verður á höndum GEST en umhverfisráðuneytið leggur sérfræðiþekkingu til verkefnisins.

Fundinn í morgun sóttu m.a. úgandískir sérfræðingar sem eru hér staddir til að vinna að gerð námsefnisins með íslenskum sérfræðingum á sviði umhverfis-, loftslags- og jafnréttismála.  Stefnt er að því að halda þrjú námskeið í mismunandi hlutum Úganda síðar á árinu, það fyrsta í bænum Mbale í austur Úganda um miðjan mars og er gert ráð fyrir um 35 þátttakendum á því.

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra ávarpar fundinn.

Þátttaka Íslands í verkefninu er í samræmi við áherslur þess í alþjóðlegu loftslagsviðræðunum undanfarin ár þar sem það hefur sett kynjasjónarmið á oddinn, enda virðist nú ljóst að áhrif loftslagsbreytinga verði meiri á konur en karla, ekki síst í fátækari ríkjum heims.

Grein umhverfisráðherra um kyn og loftslag sem birtist í Fréttablaðinu í gær.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum