Hoppa yfir valmynd
16. febrúar 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisráðherra heimsækir ÍSOR

Í heimsókn hjá ÍSOR.
Í heimsókn hjá ÍSOR.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti Íslenskar orkurannsóknir í gær, ÍSOR, eftir að stofnunin bauð ráðherranum að koma og kynna sér starfsemina sem þar fer fram.

Heimsóknin byrjaði á því að forstjóri stofnunarinnar, Ólafur G. Flóvenz og yfirstjórn kynntu fyrir ráðherra helstu verkefni ÍSOR. Þá voru húsakynnin skoðuð og fékk ráðherra þá nánari kynningu á einstökum þáttum starfseminnar.

ÍSOR er sjálfstæð ríkisstofnun sem vinnur að verkefnum og rannsóknum á sviði náttúrufars, orkumála og annarra auðlindamála.  Stofnunin er rekin á viðskiptalegum grundvelli og aflar sér alfarið fjár með sölu rannsókna og þjónustu og með öflun rannsóknarstyrkja. Um 80 manns starfa hjá stofnuninni.

Var heimsóknin bæði fróðleg og áhugaverð í alla staði.

Í heimsókn hjá ÍSOR.

Í heimsókn hjá ÍSOR.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum