Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Opin málstofa um inntak og áherslur nýrra laga um landgræðslu

Brúskur í sandi.
Brúskur í sandi.

Nefnd, sem umhverfisráðherra skipaði á vordögum til að semja greinargerð um inntak og áherslur nýrra landgræðslulaga boðar til málstofu til að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum varðandi vinnu nefndarinnar.

Þar mun formaður nefndarinnar, Daði Már Kristófersson dósent við hagfræðideild við Háskóla Íslands hafa framsögu og síðan verða opnar umræður.    

Tilgangur málstofunnar er að kynna vinnu nefndarinnar og fá ábendingar og tillögur sem nýst geta við áframhaldandi vinnu.

Málstofan er öllum opin og hvetur nefndin alla þá sem láta sig varða málefni landgræðslu í landinu að taka þátt.

Málstofan verður haldin í Þjóðminjasafninu í Reykjavík, fimmtudaginn  26. janúar kl. 14:00 - 16:00

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum